
Hvort er rétt að segja EINhver eða EITThver?
Þetta er eitt af þessum tilfellum þar sem maður les/segir eitthvað svo oft að það hljómar ekki lengur rétt. Ég er orðin alveg rugluð í þessu. Reyndi að gúgla en fékk lítið svör. Fann [Bland.is](https://Bland.is) þráð þar sem einn notandi segir að orðið EINhver sé ekki til (?) og maður á aldrei að nota það.
Er ekki EINHVER/EITTHVER snillingur sem getur gefið mér ELI5 svar við þessu 😅
8 comments
Úr málfarsbankanum:
Hvorugkyn eintölu eitthvað stendur sjálfstætt en eitthvert stendur með nafnorði. Hún gerði eitthvað. Hann fór eitthvað annað (ekki: „hann fór eitthvert annað“). Hún vann eitthvert verk (ekki: „hún vann eitthvað verk“).
Athuga skal sérstaklega að aðeins í nefnifalli og þolfalli í hvorugkyni eintölu er fyrri liðurinn eitt-, alls staðar annars staðar er hann ein-. Hann heyrði eitthvað (ekki „einhvað“). Hún fleygði einhverju (ekki „eitthverju“).
[Heimild “eitthvert” í málfarsbankanum](http://malfar.arnastofnun.is/grein/66369)
Einhver er td fyrir karlkyn/kvenkynsorð og eitthvað fyrir hvorugkyn?
Hver gefur til kynna að um kk/kvk orð er að ræða, svo þú segir einhver.
Ef um hk orð er að ræða myndirðu segja “hvað”, svo þú segir eitthvað.
“Eitthver” er ekki notað um manneskju, “einhver” er notað um manneskju.
“Einhver skrýtinn myndi reyna að nota ranga orðið “eitthver” um einhvern annan”.
“Einhver skemmtilegur vann eitthvert happdrætti” gæti verið rétt, miðað við þetta sem kom fram áður http://malfar.arnastofnun.is/grein/66369
Þau sem nota eitthver fara líka í útileigu í þæginlegum svefnpoka
> Fann Bland.is þráð þar sem einn notandi segir að orðið EINhver sé ekki til
*Eitthver* er ekki til
Einhver er óákveðið persónufornafn og beygist í hvorugkyni sem “eitthvert ⁄ eitthvað” í nf. og þf.
Gott að muna hvort þú sért að að nota einhver í stað *eitthver* með því að skoða kynið. Þú segir “ein kona og einn maður” en ekki “eitt kona og eitt maður” þannig í langflestum tilfellum myndirðu segja “einhver gerði þetta”. Í þeim tilfellum þar sem þú ert að tala um hvorugkynsorð þá myndirðu nota “eitthvert” eða “eitthvað”
”Þetta meikar engan sense”
”Þetta meikar ekkert sense”
Veit að hvorugt meikar sense en ef þú segir fyrri útgáfuna áttu skilið að vera limlestur.
ég nota bara bæði, held ég noti samt eitthver oftar.