Af því þeir þurfa þess ekki. Það er ekkert orsakasamhengi milli þess hvað þeir vita, og hvort þeir haldi vinnu sinni.
Af hverju er ekkert orsaka samhengi þarna á milli, sem myndi hvetja frambjóðendur til að kynna sér raunveruleika skjósltæðinga sinna betur?
Finnst ekki rétt að draga þá ályktun út frá þessu að frambjóðendur hafa ekki kynnt sér helstu þjóðmál. Prufaði að taka prófið og þetta voru mjög sértækar spruningar með mjög nákvæmum svörum. Frambjóðandi getur verið afbragðsþingmaður þótt hann vissi ekki nákvæmlega hvert hlutfall verðtryggðra lána sé á fasteignamarkaðinum. Og svo hvað það varðar að kjósendur voru með ögn hærra meðaltal en frambjóðendur þá hef ég það nú á tilfinningunni að fólk sem fari á heimasíðu viðskiptaráðs íslands og taki þar könnun sé ekki mjög lýsandi úrtak á íslensku þjóðinni, og séu mun líklegri til að vera með svona tölur á hreinu. Ég tók t.d. prófið og fékk bara 4 af 13 réttum, og tel mig þó almennt ágætlega upplýstann.
(Fannst pínu fyndið að þrátt fyrir að svara bara fjórum rétt þá var ég með þá spurningu sem flestir svöruðu vitlaust rétta, þ.e. með lengd vinnuvikunnar)
Èg held að besta svarið við þessu sè spurning.
Nefndu 13 þingmenn með nafni.
Eða ef við viljum gera þetta stigi erfiðara. Hverjir sátu í ráðherrastól á síðasta kjörtímabili.
Hvar liggur ábyrgð okkar sem kjósenda? Máttu hafa skoðun á pólitík ef þú nærð ekki prófinu?
Edit: hvað eru margir lögfræðingar á þingi? Sem er önnur útgáfa af spurningu úr prófinu.
3 comments