Hann hlýtur að hafa séð að hann myndi ekki vinna. Ég ætla að skjóta á að næsta skref hjá honum er að draga VR úr ASÍ með einhvers konar þokukenndum rökstuðningi um að ASÍ sé spillt batterí.
Takk Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vilhjálmur Birgisson fyrir ykkar verðmæta framlag í komandi kjarasamningaviðræður.
Með bestu kveðju,
Samtök Atvinnulífsins ^/s
Ekki bara Ragnar, allt róttæka fólkið sem ætlaði að bjóða sig fram. Það er búið að fresta þinginu á meðan það er verið að finna nýja frambjóðendur fyrir þau þeirra sem hefðu annars verið sjálfkjörin.
Ég býst fastlega við því að öll þau verkalýðsfélög sæki núna umboð frá félögum sínum til að segja sig úr ASÍ, hugsanlega til að stofna sín eigin samtök en það er kannski ekki nauðsynlegt. Það er ekki eins og ASÍ hafi verið að styðja við róttækari stéttarfélögin og þau hafa náð frábærum samningum þrátt fyrir það.
Þetta þríeggi er það besta sem hefur komið fyrir verkalýðsbaráttu láglaunafólks á Íslandi í manna minni. Djöfull er ég ánægður með þennan öfluga hóp.
Nú geta VR og Efling farið í kjarasamningsviðræður á sínum egin forsendum með sín egin áherslumál.
Gangi ykkur vel SA, nú hafiði nær enga spotta til að toga í, og bless ASÍ, ykkar verður ekki saknað.
Sú staðhæfing að þetta “kljúfi verkalýðinn og grafi undan samningsgetu VR og Eflingar” er hlægileg. Ef Efling fer í allsherjarverkfall á morgun þá leggst þjóðfélagið Ísland á hliðina ekki seinna en 00:10 og VR að sama skapi er ekki fjarri því lagi.
Eins mikið og ég tel að það þurfi að hrista upp í verkalýðsfélögum landsins sem að eru orðin eins og rykfallnar ríkisstofnanir með fullt af fólki sem að er búið að vera lengi í starfi og nenna ekki brasi lengur.
Þá held ég að þetta þríeyki sé að verða búið að sýna það að þau geti ekki byggt neitt upp né unnið með fólki almennt ef að það er jafnvel að minnsta leyti ósammála einhverju sem að þau segja eða gera. Þau gera lítið í því að leiða fólk og vilja frekar berja það áfram.
Kæmi mér ekki á óvart að ef að þau stofna nýjan vettvang þá fari þau að ráðast á hvort annað.
Þau vilja öll vera foringinn og krefjast þess að foringinn sé dýrkaður.
5 comments