Ég veit nákvæmlega ekkert um þetta mál annað en það sem hefur komið í fjölmiðlum og finnst mjög erfitt að átta mig á hvort hún sé svona mikil alþýðuhetja sem stendur á réttu prinsippunum eða hvort hún sé alveg kolómöguleg í samskiptum

[https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/10/11/aetlar\_ad\_raeda\_ursogn\_ur\_asi/](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/10/11/aetlar_ad_raeda_ursogn_ur_asi/)

Er einhver hér með first- eða second-hand upplýsingar um hvernig sé að vinna með þessari konu?

9 comments
  1. Geggjuð tímasetning rétt fyrir kjaraviðræður. Maður er nú eiginlega farinn að spá hvort að þessi upplausn sé ekki farin að snúast um egó formanna VR og Eflingar frekar en hagsmuni verkafólks.

  2. >hvort hún sé svona mikil alþýðuhetja sem stendur á réttu prinsippunum eða hvort hún sé alveg kolómöguleg í samskiptum

    Bland af báðu. Hún er mikil alþýðuhetja og vann stóra sigra í kjarasamningum, það verður seint tekið af henni. Á hinni bóginn virðist sem hún eigi erfitt með málamiðlanir og þegar fólk er ósammála hennar stefnu og áherslum. Hef heyrt að hún geti verið ansi þrjósk í samskiptum og stjórnarháttum – sem er frábært ef þú ert í samningaviðræðum við Ríkið, en það verður fljótt þreytt ef þú ert vinnufélagi

  3. Er allavega nógu vanur skrifstofupólitík til að þekkja toxic hegðunarmynstur fyrrverandi ASÍ stjórnenda. Þannig að Sólveig á að mínu mati inni smá auka reipi bara fyrir að hafa dílað við það.

  4. Mér skilst að það sé hennar skoðun að ASÍ standi ekki vörð um hagsmuni þeirra sem lægst hafa launin heldur snýst verkalýðsbaráttan meira um stöðugleika og kaupmátt á sama tíma og lægstu laun duga ekki fyrir leigu og framfærslu út mánuðinn. Lái henni hver sem vill.

    Það kann vel að vera að millistéttin hafi það að meðaltali mun betra núna en fyrir áratug síðan en það er alveg bókað að verka- og láglaunastéttinar hafa það drulluskítt. Sólveigu er skítsama um stöðugleika, meðaltöl og kaupmátt ef að hennar félagsmenn ná ekki endum saman vegna þess að matur og leiga halda áfram að hækka langt umfram launin.

  5. Hef heyrt það að hún díli við samstarfsaðila sem hafa aðrar skoðanir en hún eða ábendingar alveg eins og hún hefur dílað við mótherja.

    Hún getur ekki unnið með öðrum en klappstýrum og já-fólki.

    Líklega svolítið ýktar sögur en það er alltaf sannleikskorn í svona.

  6. Hún rak allt starfsfólk sitt bara til þess að ráða það aftur inn á lægri launum.

    Hún rak alla sem voru gegn henni eða beitti þau ofbeldi þangað til þau hættu.

    Hún virti kosningar af vettugi gegn lögum og setti strengjabrúður sínar í þær stöður.

    Það er til orð sem lýsir svona stjórn. Það byrjar á F.

  7. Við “sótsvartur almúginn” vitum lítið sem fyrr hvað er í gangi á bak við tjöldin þarna. En greinilega eru helvítis læti þar og ég fyrir mitt leyti fíla það… löngu kominn tími til að stokka eitthvað uppí þessu kerfisbjákni!

  8. Standandi sjálfur í svipaðri baráttu í verkalýðsfélagi þá skil ég Sólveigu aðeins. Hvort henni takist að halda sama andliti þegar allt róast er svo önnur spurning. Það er margt sem gerist á bakvið tjöldin sem ekki er auðskýranlegt.

Leave a Reply