Og hvað. Mun það miðast við bara þegar lánið er tekið eða er það sí breytilegt?
Spurning hvort þá að þeir sem vinni eins og brjálæðingar til að safna sér fyrir útborgun og fari síðan að vinna bara eðlilega hafi eitthvað gott út úr þessu.
Edit: misskildi fyrstu fréttir af þessu
Er vont að biðja um ELI5 fyrir plebba eins og mig sem gleymdi að fá sér morgunkaffið?
Þetta er allt í lagi. Ég kaupi mér bara fasteign í næsta lífi.
Þetta er engin lausn.. þýðir bara færri lán eru gefin út, það þarf að breyta markaðinum, bæði leigu- og húsnæðismarkað.
Verður þetta til þess að neyða láglaunafólk og fyrstu kaupendur til að taka verðtryggt lán (þar sem afborganir eru lægri til að byrja með)?
Ok, þetta eru augljós merki um að Seðlabankinn telji að það sé fasteignabóla í gangi.
Bætast við nokkur ár hjá einhverjum til að koma með útborgunina held ég og þetta er ekki að hjálpa til við húsnæðisvandann.
Shit sorrý með mig en ég skil þetta ekki alveg þrátt fyrir að hafa lesið commentin. Er þetta ekki til hins betra?
Þ.e.a.s. Að greiðslubyrðin þurfi ekki að vera jafn há og hefur verið og þar af leiðandi auðveldara að taka lán fyrir fólk sem hefur ekki jafn mikið
Mér finnst að það ætti að splitta greiðslumati eftir því hvað þú ætlar að gera við eignina, það ætti bæði að vera erfiðara að fá lán fyrir tilvonandi leigu/airbnb íbúð og auðveldara fyrir íbúð sem þú ætlar að búa í sjálfur.
Þetta er náttúrulega stórkostlega varasamt.
Það er nú þegar þannig að fólk er að borga mun hærri leigu en greiðslubyrðin er að lánum sem bankar eru til í að veita þeim til að kaupa.
Það eina sem þetta gerir er að minnka þann hóp sem getur mögulega keypt sér húsnæði, og býr til skarpari skil milli þeirra sem eru nógu ríkir til að eignast húsnæði og þeirra sem neyðast til að leigja bara alla ævi.
Ég er ekki fylgjandi séreignastefnu, út af fyrir sig, en það er fáránlegt að hún sé í boði fyrir suma en ekki aðra. Því fyrir venjulegt fólk er fasteign skýrasta langtímaleiðin til að búa sér til einhver verðmæti, einhverja eign.
Nú er ég búinn að melta þetta í 5 tíma, fá mér næringu, kaffi, fara í ræktina og allt það.. Ég er í hálfgerðu losti hugsa ég.
Síðastliðin 2-3 ár hef ég verið að leggja til hliðar svo ég gæti átt fyrir innborgun á íbúð. Það hefur að sjálfsögðu gengið misvel, bæði vegna Covid og atvinnu ó-öryggi (eðli þeirrar atvinnu sem ég stunda).
Fyrst núna hef ég verið að sjá fyrir endann á þessari söfnun og hef verið að ímynda mér að ég gæti keypt mér ódýra íbúð á höfuðborgarsvæðinu á fyrir lok sumars næsta árs, ef ekki núna í vetur.
Með þessu sé ég fram á að þurfa annan eins tíma til að safna fyrir annari eins upphæð til að lækka mánaðarlega greiðslubyrði, án þess að fara í dýrari eign að sjálfsögðu.
Á sama tíma hefur maður verið að hlusta á ýmsar spár að hækkanir á húsnæði muni vera 10-20% á ári næstu tvö árin, og séð með eigin augum í kringum sig hvernig markaðurinn hefur hækkað í klukkutíma radíus við höfuðborgina.
Ætla ekki að fara að væla yfir því að þetta sé óskynsamlegt endilega að setja þessa reglu á, og hef ekkert vit á þessum heimi, en djöfull andskoti er þetta svekkjandi staða.
Heldur vont fyrir taugarnar að vera borga leigu sem er meira en maður áætlar að borga mánaðarlega í lán fyrir sínu eigið (þó maður fari að þylja upp ýmiss útgjöld eins og tryggingu, fasteignargjöld of.l).
10 comments