
Stöð 2 að reyna vera relevant..
Búið að svipta hulunni af einhverjum Húgó!! Hahah.
https://www.visir.is/g/20222323600d/hulunni-loksins-svipt-af-hugo
Það væri gaman að vita hversu stór hluti þjóðarinnar er í einhverri tengingu við línulega sjónvarpsdagskra hérna.
6 comments
Veit ekki, hef ekki horft á línulega dagskrá í mörg ár síðast þegar ég horfði á eitthvað á sjónvarpi var það cyberpunk edgerunners á netflix. En ég veit ekki skammast mín smá hvað ég er algjörlega out of the loop haha. 🦊
Stöð 2 var svo mikið að reyna að gera Húgó að eithvað spennandi character en svo er það bara eithver gaur.
Er þetta línulegt? Hélt þetta væri bara á +.
Mér finnst oft eins og stöð tvö sé bara að gera efni fyrir eigið starfsfólk, veit ekki um neinn sem horfir á þetta heimagerða efni þeirra
Línuleg dagskrá er nú ekki alveg dauð, stór hluti minnar kynslóðar bíður spenntur í hverri viku eftir nýjum House of the dragon og/eða Rings of Power þætti.
En ég hafði aldrei heyrt um þetta húgó dæmi fyrr en núna.
Er að vinna hjá Stöð 2 í söludeildinni og það hafa aldrei verið jafn margir með Stöð 2. Eh nokkura ára gamalt met var slegið í janúar og hefur bara aukist síðan.