Vill lokaðar búðir fyrir þá sem er synjað um hæli

11 comments
  1. Kemur á óvart að dómsmalaráðherra sem vill vopna lögregluna frekar ásamt forvirkum rannsóknarheimildum vilji einnig lokaðar flóttamannabúðir (en ekki kalla það samt flóttamannabúðir, það er svo ljótt).

    Full fasískur dúddi miðað við stefnur sínar og áherslur.

  2. Það er svo fyndið að sjá alla hérna henda fram niðrandi orðum án þess að vita hvernig stjórmálaflokkar taka þessum flóttamönnum.

    Fjöldi leyfa fyrir flóttafólki útgefin í stjórn Samfylkingar:
    2010: 22
    2011: 21
    2012: 29

    Fjöldi útgefinna leyfa árið 2020 með stjórn Sjálfstæðisflokksins: 631

    [Heimild](https://www.mcc.is/fagfolk/flottafolk-a-islandi/)

    Stjórn Sjálfstæðisflokksins gefur út u.þ.b. **50 sinnum fleiri leyfi** en stjórn Samfylkingarinnar.

    Ef þetta er “rasíst” og “fasíst”, þá get ég ekki ímyndað mér hvaða orð þið eigið yfir Samfylkinguna.

    En tölfræðin lýgur ekki. Ef þú vilt fleiri flóttamenn á Íslandi, kjóstu Sjálfstæðisflokkinn. Ef þú vilt setja harðar skorður á flóttamenn, kjóstu Samfylkinguna.

  3. Hann vill búðir fyrir á sem synjað er um hæli.
    **Ekki þá sem uppfylla skilyrði.** Eða hvað?

    Meirihluti þeirra sem sækja um hæli hér uppfylla skilyrði sem eru til staðar.

    Fólk frá Úkraníu, Venesuela og eftivill fleiri ættu að fljúga í gegn samkvæmt núverandi lögum.

    **Móttökubúðir,** fyrir alla, er annað **sem ég er á móti.**
    Ef þær eru hugsaðar fyrir alla þá er það rasismi.

    Ég er engin rasisti og hef búið meðal þjóða þar sem þjóðerni er miklu fjölskrúðugra en hér og líkað vel.

  4. Ekki innan um landann þýðir engin aðlögun að samfélaginu þýðir engar vælfréttir um litlu ahmed og Aishu sem er verið að rífa frá vinum sínum til að senda til Grikklands eða hvaða ~~skítapleis~~ góða og örugga umhverfi 👌

    Látum gamla Jón drulla þessu í gegn, Brynjar tekur alla athyglina til sín með því að vera á bylgjunni tvisvar í viku þar og Guðrún tekur svo við embættinu hrein og fín og sjallarnir sem við þekkjum munu allir segja að þeir styðji þetta sko ekki en munu ekkert kjósa annan flokk frekar en venjulega.

  5. Maður hefur lengi fengið þau skilaboð að útlendingamál á Íslandi séu í ólestri. Dómsmálaráðherra þykist vera með lausnir en þær lausnir eru sagðar einkennast af mannvonsku og fasisma.
    Getur einhver sagt eða bent mér á greinar þar sem útlendingamál á Íslandi í dag eru útskýrð með hlutleysi? Ég hef ekki hugmynd um hvað er rétt og rangt í þessu.

  6. Ef við viljum hjálpa sem flestum sem þurfa að komast í skjól þá þarf skilvirkt ferli. Er þetta ekki skref í þá átt?

Leave a Reply