
Var að horfa á [þetta](https://www.youtube.com/watch?v=1UmXYlJ0Giw&ab_channel=Reykjav%C3%ADkurborg) myndband af fundi frá því í Júní þar sem sýndar voru ýmsar tillögur að byggð eftir að Miklabruat og Sæbraut verða lagðar í stokk. Hins vegar finn ég ekki neins staðar neitt um það hvort sé búið að velja hvaða tillögur verða notaðar, eða hver staðan sé á ferlinu. Velti því fyrir mér hvort hér séu einhverjir fróðir einstaklingar sem vita hver staðan á þessu ferli er og geta upplýst um það.
4 comments
Þetta yrðu ákveðnar stokkbreytingar í umferðarmálum
Þetta er það eina sem þessi blessaða borgarstjórn getur gert, fundað endalaust um hlutina fyrir fúlgu fjár en nákvæmlega engu er hrint af stað, sama með borgarlínuna, hún er nú þegar búin að kosta skattgreiðendur milljarða en lítið að frétta þar.
Það er örugglega ekki búið að velja neitt og þetta er heldur örugglega ekki komið í neitt ferli ef ég þekki þessa borgarstjórn rétt
Miklabraut og Sæbraut í stokk eru eins og hver önnur stærri byggingarframkvæmd á Íslandi. Að byggja tekur oft minnsta tímann. Þessar tillögur eru enn frekar snemma í ferlinu að mínu mati. Þetta er í raun bara teikning/tillögur arkitekta. Svo þarf að velja hugmynd og vinna úr henni. Það á eftir að fara í alls kyns greiningar og samráðsferli við hagsmunaaðila sem munu svo skila inn umsögn (t.d. Veitur, Umhverfisstofnun, Minjastofnun ef þarf, o.s.frv).
Það er t.d. alveg frekar mikil vinna eftir fyrir verkfræðinga að gera hönnunina að raun og að finna út hvert einasta smáatriði (lagnir, magn steypu, jarðvinna, beining umferðar meðan verið er að byggja, o.s.frv) í verkefninu svo hægt sé síðan að bjóða það út. Þetta tekur allt sinn tíma.
Finnst fínt að benda á hluta af svari sem ég setti hér inn fyrir nokkru um stöðu Borgarlínunnar:
>Að byggja tekur oft minnsta tímann. Skipulagið tekur alltaf lengstan tíma vegna lagalega ferla (sjá t.d. byggðina í Hlíðarenda, byrjaði fyrstu greiningar upp úr 2010-2013, deiliskipulag komið minnir mig um 2016 og ætti að klára að byggja seinustu byggingarnar 2021/2022). Á sama hátt hefur Borgarlínan verið í vinnslu síðan 2015.
>
>Nú hefur nýlega komið skýrsla með frumdrögum að fyrstu lotu og margir hagsmunaaðilar skilað umsögn um fyrstu lotu, t.d. Veitur og Minjastofnun, Landssamband Hjólreiðamanna o.fl. Það þarf þó að klára fleiri atriði (svo sem hönnun/skipulag/kynningu skipulags Sæbrautarstokks og brýr yfir Geirsnef og Fossvog) áður en farið verður í framkvæmdir á fyrstu lotu 2022-2025, sjá [https://borgarlinan.is/timalina](https://borgarlinan.is/timalina). Innleiðing á nýju leiðarkerfi verður um 2024/2025.
Ég hef áhuga á að vita hvort það hafi verið skoðað að hleypa bara útblásturslausum bílum í stokka, hversu mikinn kostnað það myndi spara að þurfa ekki að hugsa um að loftræsta stokkana og hvort að slík ‘mismunun’ standist lög