Fann áhugaverðan póst á Facebook. Erum við að byggja það besta sem við getum gert?

31 comments
  1. Vona að nýi miðbærinn í Selfossi verður smá vitundavakning. Við getum gert mikið betur en þessir sállausu steypukassar.

  2. Finnst þessi íslensku alveg forljót.
    Einn rúntur í gegnum Kórana og Hvörfin í Kópavogi og mann langar að klóra úr sér augun…

  3. Ef þú byggir hús þá ræður þú í hvaða stíl arkitektinn þinn teiknar.

    Þetta er greinilega bara vilji þeirra sem byggja.

  4. eflaust, það er samt verið að byggja í stíl svipað og neðri myndin á Íslandi, t.d Bjarg er að byggja mjög skemmtileg hús við Hallgerðargötu á Laugarnesinu. En verið er að bera saman mynd hérna af raunheiminum (efri) og tölvuteiknaðri mynd (neðri) sem er ekkert sérstaklega sanngjarnt.

  5. Það er fyrst og fremst verið að tala um að gera húsin fallegri. Mér finnst vanta smá umræðu um að byggja meira praktískt. Þessi flötu þök eru meiriháttar vesen og þarf iðulega að skipta á þeim eftir 20 ár. Fatta ekki alveg hví þau eru svona mikið í tísku. Svo sýnist sitt hverjum hvort klæðning eða málning sé heppilegri. Ég get samt verið sammála því í grunninn að það er skemmtilegra fyrir augað þegar hús og hverfi eru litrík í stað þess að allt sé grátt.

  6. Hvorug myndin bendir til þess að neitt hafi verið sérstaklega í hönnun, og þó að húsin að ofan séu mjög óspennandi eru húsin að neðan engu skárri, svona litagleði sker líka alveg svakalega í augun.

    Ef gróðurinn yrði fjarlægður af tölvuteiknuðu myndinni myndi þetta svo líta enn verr út.

    Það eru klárlega til dæmi sem samræmast byggingastílum að ofan þar sem meira er lagt uppúr hönnun og gróður fær að njóta sín.

    Uppbyggingingin í nýja Vogahverfinu, Smáranum og við Hafnartorg (tgverk.is, 201.is) eru öll mikið betri dæmi um nútíma íbúðarhús, svo er neðri Fossvogurinn eða Lundurinn í Kópavoginum líka mjög fín nýleg hverfi. Það er klárlega hægt að byggja almennileg hverfi með heildstæða ásýnd án þess að ofbjóða skilningarvitunum.

    En á móti kemur að þau hverfi eru svo með þeim dýrustu á landinu.

  7. Heyr heyr! Ég hneykslast á hverjum degi yfir hversu hræðilega ljót íslensk hús eru. Ótrúlega niðurdrepandi að bera þau augum.

  8. Gömlu íslensku húsin eru svo falleg ég væri til í að sjá fleiri hús þeim stíl. Bara þótt að hús séu í nýjum stílum þýðir ekki að þau þurfa að vera ljót það er alveg hægt að gera þau falleg bara setja smá effort í það. En það virðist kannski vera of erfitt fyrir suma smh.

  9. Það er bara allt grátt í dag. Ég verð stundum kjaftstopp að skoða fasteignaauglýdingar: grátt gólf, gráir veggir, gráar innréttingar, grá húsgögn og svo einn mislitur púði

  10. Heyr fokking heyr. Hugmyndafræðilegur gunguháttur ræður því að arkitektar eru að hanna innra byrðið bygginga fyrst og er svo algerlega drullusama um hið ytra. Hugmyndin virðist vera að hámarka nýtni fermetra án þess að reyna að skapa eitthvað sem lítur vel út.

    Stundum reyna þeir að redda sér með því að klæða kubbana með mismunandi litaðri stálklæðningu en það er almennt séð ekki að hjálpa.

    Þetta er persónuleg skoðun mynduð eftir rökræður við arkitekta á fylliríi.

  11. Þótt ég skilji hvað viðkomandi er að tala um, að bera saman mynd af alvöru nýbyggingum við einhverja tölvuteikningu, sem hefur strompa… sem fyrirmynd af nýbyggingum í öðrum löndum…

    Þetta dregur þá mynd að sá viðkomandi heyrði af málefni sem vert er að tala um enn hljóp svo hauslaus af stað. o_ö

  12. Nei við erum bókstaflega komin í afturgang í iðnaðinum. Og það hlaut að koma að því.

  13. Ég átti heima í miðju húsinu á efri myndinni þarna. Algjörlega depressing staður. Allt er málað grátt, allir skápar eru gráir, svalirnar hafa ekkert til að horfa á og eru úr gráum steypusteinum og svo framvegis, Ömurlegur staður

  14. Ég er ekkert viss um að húsin á neðri myndinni séu eitthvað skárri þó þau séu litríkari, þetta er samt eitthvað sem ég hugsa um í hvert skipti sem ég keyri um bæinn. Ég get alveg sætt mig við að fórna útliti fyrir praktík að einhverju leiti en það er verið að fórna hvoru tveggja fyrir lægri kostnað.

  15. Finnst mörg ný hverfi alveg hryllilega kuldaleg og án sjarma, gráir steypuklumpar.

  16. Það er hræðilega ljótt hverfi að rísa á Selfossi, við flugvöllinn, ÖLL húsin eru grá eða svört eða bæði.
    Ömurlega depressing..

  17. I mean sure, there’s some nice architecture revival going on on a small scale here in Sweden, but we also have plenty of ugly boring and gray buildings being built too.

  18. Drep þunglynd raðhús. Fylgir allavegana taflborð með svo þú fremur ekki sjálfsmorð í þessum raðhúsum.

  19. Nýbyggingar á Íslandi eru í 90% tilvika sálarlausir, kaldir og gráir steypuklumpar. Hver samþykkir þessar teikningar? Algjört klúður 🤕

  20. Ég myndi velja efri bygginguna allan daginn. Vil ekki hafa nágranna hinum megin við vegginn.

  21. Ég hata svona character-laus kassahús, svo ég á ekki erfitt með að velja haha!

    Hvernig stendur á því að við náðum hæðsta punkti í byggingastílsfegurð fyrir um það bil 200 árum, og göngum svo um og tölum um framfarir?

    Þetta hjlómar helvíti rant-y hjá mér, en mér finnst bara sorglegt hvernig arkítektar hafa farið með borgir og bæi heimsins. Það er því miður bara “of dýrt” að skreyta byggingar lengur… helvítis kapitalismi haha

  22. Man þegar svona fyrsta hrina uppbygginga á Selfossi sem ég sjálf man eftir (í kringum 2008), þá leigði frænka mín raðhús. Allt grátt bárujárn að utan. Þegar ég fór inn til hennar varð mér strax kalt; allt var hvítt. Ísköld og skær ljós í loftinu, og það bætti einnig gráu ofan á hvítt (bókstaflega) því hún lét endurprenta allar ljósmyndir sínar í svarthvítu til að passa við allt saman.

    Ég fæ ennþá kuldahroll við minninguna.

Leave a Reply