Viður­kennir að hafa ekki inn­siglað kjör­seðla og ber fyrir sig hefð.

13 comments
  1. En þetta er í lagi krakkar.

    Þetta er brot á kosningalögum en eins og
    Formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi sagði, þá hafa þeir brotið kosningalög árum saman þarna fyrir norðan. Allavega eins lengi og hann man eftir.

    Ef þið rennið yfir ástæður þess að hæstiréttur dæmdi kosningar til stjórnlagaþings ógildar, þá er þetta verra en allar þær.

  2. Hvernig virkar þetta með caps og það dæmi, veit ekkert hver tilgangurinn er á bakvið það en ég trúi ekki öðru en að það sé viðeigandi í þessu dæmi.

    “eKki kOmA mEÐ þeSsa trUmPista sæMsæris MeNnInGu hInGað”

    Gerði þetta ekki nógu vel eða kannski kann ég þetta ekki bara

  3. “Ég veit ekki hvernig þið gerið þetta fyrir sunnan en hérna í sveitinni erum við vön að brjóta kosningalög og höfum gert eins og elstu menn muna”

  4. Fyrir mér angar þetta mál af óskiljanlegri vanhæfni, vanhæft fólk sem á að hafa sótt viðeigandi nám og ætti að vera hæft og kunna til þessara verka en gerir það ekki. Þarna er fólk, sinnandi hinum ýmsu stjórnsýslustörfum, og í stað þess að styðja sig við sett lög og reglugerðir um hvernig vinna skuli af hendi stjórnsýslustörf sín er bara stuðst við hvernig þetta fólk minnir að hlutirnir hafi verið gerðir síðast.

    Ég leyfi mér að staðhæfa að það er víða pottur brotinn í stjórnsýslustörfum þarna í Borgarnesinu. Klúðurlistinn þar á bæ sem heyrst hefur af er að verða leiðinlega langur.

    Þarna voru vankantar á framkvæmd endurtalningarinnar, óvart eða viljandi, og fyrir vikið er ekki hægt að treysta niðurstöðum endurtalningarinnar.

    Hvað er annað í boði en að nota fyrstu talninguna (eða framkvæma kosninguna aftur)?

    *Edit:*

    Fólk hefur verið að benda á að í raun sé ekki hægt að láta fyrri talningu gilda, þar sem gögnunum, kjörseðlunum, hafi verið spillt þegar þau voru skilin eftir óinnsigluð. Kosningin í Norðvestur sé þar með misheppnuð og ónothæf, með réttu ætti að kjósa í því kjördæmi aftur.

    > **115. gr.**
    >
    > Nú verður uppkosning nauðsynleg fyrir það að kosning er úrskurðuð ógild skv. 46. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 120. og 121. gr. þessara laga, og skal þá [ráðuneytið] 1) með auglýsingu kveðja til nýrra kosninga í kjördæmi og ákveða kjördag svo fljótt sem því verður við komið og eigi síðar en innan mánaðar.

    – [althingi.is – Lög um kosningar til Alþingis, 2000 nr. 24 16. maí (Íslensk lög 13. apríl 2021. Útgáfa 151b)](https://www.althingi.is/lagas/nuna/2000024.html)

  5. Þetta er mögulega ein mesta aðför að kosningum hér á Íslandi ever.

    ég er ekki að ýkja, þessi blessaða yfirkjörstjórn hefur ein síns liðs varpað rýrð á kerfið okkar sem að hann Sigmundur Davíð gat ekki einu sinni gert.

    Þau ættu að skammast sín og með réttu ættu kosningarnar að vera endurteknar þarna.

  6. Spurning um að taka kosningaréttinn af þessum Norðlendingum fyrir næstu tvennar kosningar í refsingu.

    Fáránlegt að þeir séu með margfalt atkvæðavægi annarra en geta ekki gert hlutina almennilega.

  7. Nú eru bæði Píratar og M listi búnir eða að fara að kæra, þannig að líklega verður kosið aftur, þannig að hringekjan gæti farið aftur af stað.

  8. Eins og ég held að líklega hafi endurtalningin skilað réttri niðurstöðu.

    Þá munu svona sveitó hefðir og hugsunarleysi í að fara ekki að lögum og reglum um framkvæmdina halda áfram nema ef að það verði afleiðingar af þessu sem að enginn nennir að lenda í aftur.

    Ætti að fara til Hæstaréttar held ég og mögulega kjósa aftur. Við lærum ekkert hérlendis nema að það hafi afleiðingar.

  9. Píratar hafa gert athugasemdir við framkvæmd hverja einustu kosningu sem þeir hafa tekið þátt í frá upphafi, og menn eins og þessi þumbi í NV hafa komist upp með að svara með skæting og bulli um hefðir.

    Hvað svosem mér finnst um mikið af þeirra pólitík þá er þetta þó fjöður í þeirra hatt að reka á eftir því að hlutirnir séu nú allavega gerðir eftir bókinni, þótt að bókin sé stundum úrelt.

  10. “Við höfum alltaf svindlað í kosningunum, það er hefð fyrir því.”
    Það er stórhættulegt að svona lítið samfélag með svona mikið vægi hafi ekki óháða vagt með kjörgögnum.

Leave a Reply