Hætta með næturstrætó

14 comments
  1. Þó ég drekk ekki þá hef ég oft hugsað þegar ég sé stundum hálftóma strætisvagna afhverju þeir fara ekki af og til ferðir bara á minni rútum einsog sprinter en jú að vísu launakostnaður væri enn of hár en eitthvað hlýtur það að vera ódýrara. Ég bý ekki í bænum en hef alveg tekið eftir að stundum eru þeir með frekar fáa farþega og dýrt að keyra tómann strætisvagn svo hversvegna ekki bara litla sprinter rútu eða eitthvað bjóða þannig áfram svo næturstrætó finnst nafnið svolítið töff minnir mig á harry potter einhvernveginn.

  2. mér finnst nú 16-18 farþegar í hverri ferð bara nokkuð gott. 300-400 manns sem sleppa því þá að keyra full eða eyða mörg þúsundum í taxa. þetta er þjónusta og ætti ekki að þurfa að vera arðbært

  3. SVo fokking fyrirsjáanlegt. Þegar þetta var tilkynnt í byrjun sumars bentu allir og ömmur þeirra stjórn Strætó á að mesta vandamálin, og mesta þörfin á strætó, var þegar bærinn lokaði. Og hvað gera þau? Jú, þau skipuleggja síðustu ferð rúmlega klukkutíma fyrir lokun bæjarins. Plús það að helling af fólki var að lenda í stökustu vandræðum því það gat ekki borgað með appinu, enginn posi var í vagninum og fólk ekki með seðla á sér. Margir sem biðu samviskusamlega eftir strætó en var svo ekki hleypt inn útaf þessum vandræðum.

    Strætó BS er algjörlega ónýtt batterý, þessi pólitískt skipaða stjórn er mesta drasl sem fyrirfinnst á þessu skeri. Fagráðna stjórn helst í gær takk fyrir pent.

  4. Svona fer Nýfrjálshyggjan með alla almannaþjónustu. Þetta eru ekki mistök, þetta er allt svo útskýranlegt innan ramma hugmyndarfræði nýfrjálshyggjunnar að fólkið sem framkvæmir þennan gjörning bara sér ekki möguleika til að gera neitt annað.

    Það er það sem ríkjandi hugmyndarfræði gerir – hún skilgreinir fyrir okkur hvað er eðlilegt upp að því marki að við förum að telja viðbrögð hugmyndarfræðinnar sem einu náttúrulegu viðbrögðin.

    Þessvegna er ráðafólk bara að tala um Borgarlínuna á meðan Almenningssamgöngur eru étnar upp að innan.

  5. Ég vil að það komi fram að við erum með það til skoðunar í Reykjavík hvort við getum haldið Næturstrætó gangandi á þeim leiðum sem eru innan borgarinnar amk.

    Þetta er bara gífurlega mikilvægt öryggismál og skiptir líka máli fyrir fráflæði og hávaða.

  6. Af hverju þarf þetta að þéna til að halda áfram? Þetta er mikilvæg þjónusta fyrir almenning

  7. – Lélegt app sem oft virkar ekki til að greiða í strætó

    – Nýleg hækkun á fyrir dýrasta fargjaldi evrópu

    – Hætta með næturstrætó

    Þetta apparat virkar bara ekki og er á hraðri leið niður, það þarf endurskipulagningu á kerfinu og þá helst samgangnafræðing frá Hollandi til að grípa inn í. Setja fargjald í áfyllingarkort, leyfa fargjaldssölu um borð, borga lítið gjald fyrir hverja ferð sem er hafin (þá ekki talið með skiptingar um strætó) og setja lítið kílómetragjald

    Mögulega væri gott kerfi að hafa strætó í flestöll hverfi eins og var, láta strætó þræða litlu göturnar með endastað á helstu miðstöðum strætó, spöngin, hlemmur, hamraborg, mjóddin og svo hraðsyrætó þar á milli sem stoppar aldrei, fer bara beint á milli miðstaða og fólk svo tekið minni strætó á áfangastað

  8. Með þessum rökfærslum ætti að leggja niður strætó almennt. En þetta er ekki gróðastarfsemi heldur spurning um ferðafrelsi ekki satt?

  9. Allt snýst um peninga frekar en þjónustu á þessu landi greinilega. Er ekki svo einkavæðing heilbrigðiskerfisins næsta skref í boði hægristjórnarinnar?

  10. Ég drekk ekki og djamma ekki, svo skoðun mín kemur frá því sjónarhorni. Eflaust er hún óvinsæl.

    Þetta er að mínu mati ömurlegur kúltur. Fólk er að drekka langt fram eftir nóttu. Það er ekki hollt. Fólk tekur ömurlegar ákvarðanir undir áhrifum áfengis. Fólk brýtur frekar lög. fólk brýtur frekar á öðru fólki. Undirheimar þrífast í þessum kúltur.

    Farið bara fyrr að djamma, og hættið fyrr að djamma. Þið haldið betri reglu á svefninum, og þið þurfið ekki að heimta að ríkið (skattborgarar) séu jafn meðvirkir í þessari óreglu ykkar.

    Þó ykkur sé frjálst að djamma þá á ríkið ekkert að vera ýta undir þessa óreglu.

  11. And then they pretend us to not use the car and stop DUI. There are not enough taxis to cover the demand (+ they’re absurdly expensive). Logics?

Leave a Reply