Ræddu um að myrða Guðlaug Þór

6 comments
  1. Þetta eru augljóslega hægri sinnaðir hryðjuverkamenn, það eitt að þeir ætluðu að taka málin í eigin hendur og leysa málin af eigin framtakssemi afskrifar alla vinstrimenn.

    Leiðinlegt að samfélagið þurfi að vera með svona rugludalla innanborðs, en þá væri kannski ágætt á móti að nýta hægri hugmyndafræðina og að þeir fái þá að taka við afleiðingum ákvarðanna sinna.

  2. Það kemur á óvart hversu sterk viðbrögð eru hérna við þessari frétt. Ég hefði haldið að ofbeldi og hryðjuverk í pólitískum tilgangi væri frekar létt að fordæma í flestum tilfellum óháð hugmyndafræði geranda eða fórnarlamba. Hvort sem þið viljið halda því fram að nýnasismi sé öfga hægri eða ekki, þá hafa þessir aumingjar líka ástæðu til þess að hata sjálfstæðismenn.

    Öfgafólk sem hvetur til eða skipuleggur ofbeldi í pólitískum tilgangi getur komið frá ýmsum hugmyndafræðilegum bakgrunnum. Hversu nálægt þetta fólk eða fórnarlömbin þeirra eru ykkur í skoðunum ætti ekki að hafa áhrif á hversu rangt ykkur finnst þetta vera.

  3. Ræddu þeir að drepa þetta fólk? Eða lögðu þeir á ráðin að drepa þetta fólk?

    Hálfvita edgelords með byssu (um að gera að taka þær af þeim) sem segja allskonar rusl, eða einhverjir sem hefðu drepið þetta fólk hefði lögreglan ekki stoppað þá? Finnst vera grundvallarmunur á þessu.

Leave a Reply