Lokatölur: Ríkisstjórnin heldur velli með 37 þingmenn

9 comments
  1. Best af öllu við þessar kosningar er að við erum laus við Brynjar Níelsson af launaskrá Alþingis.

  2. Margt sem kemur á óvart en það sem kemur lang mest á óvart er fylgi Flokks Fólksins, flestu kannanir bentu til 0-3 þingmanna svo 6 manns eru ótruleg tala.

  3. Ég er ekki alltof viss um að ríkisstjórnin haldi velli. Mér finnst ólíklegt að VG vilji halda áfram ef þeir missi forsætisráðuneytið, og mér finnst ólíklegt að Framsókn sætti sig við engar breytingar miðað við gengi þeirra í kosningum.

    Mitt gisk er að VG verði skipt út fyrir annað hvort M, C eða F. Hljómar hræðilega en Kata Jak gæti þó vonandi leitt almenninlega stjórnarandsstöðu í staðinn fyrir þetta drasl sem stjórnarandstaðan var seinustu 4 ár.

  4. Alveg ferlega súrt að 4,6% atkvæða falli bara dauð, tæp 5% geta munað alveg helling í svona kosningum.

  5. Ég skil ekki afhverju kerfið er eins og það er. Best væri að fá að velja að minsta kosti 3 flokka og raða þeim eftir þeim sem maður vill helst í stjórn. Ég kaus ekki Sósíalista en mér finnst fáránlegt að 4% kjósenda hafi hent atkvæðum sínum í ruslið með því að kjósa þá.

Leave a Reply