Blasir við að bjóða út rekstur Strætó

6 comments
  1. Kemur sjallaógeðið með bílaheilann og vill fá að gefa vinum sínum smá opinberann pening, gat nú verið.

  2. Þetta er endastöð allra þeirra opinberu þjónustu sem er “hagrædd” undir markmiðum nýfrjálshyggjunnar, og þá sérstaklega OHF merkið (er ekki viss um að Strætó BS sé OHF samt).

    Við vissum það ekki þegar hið opinbera byrjaði að hagræðda öllu undir OHF fyrirkomulagið – en við vissum það eftir hrun, og Rannsóknarskýrslu Alþingis. Við leyfðum bara svo gott sem sama fólkinu annaðhvort að plata okkur aftur með sama gabbinu, eða við flöskuðum á lýðræðislegum skyldum okkar og leyfum fólki að hafa af almenningssamgöngu af samfélaginu okkar í smá þægindarmóki.

    Þetta er ekki einasta, né seinasta, þjónustan sem mun lenda í þessum algerlega fyrirsjáanlega vítahring niðurskurðar þjónustu, hækkunar á gjalskrá, fækkunar á notendum og svo loks boðinn út sem tækifæri fyrir einkaaðila að græða á samfélaginu með stuðning ríkisins.

  3. Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig í ósköpunum fólk fær það út að það sé hagræði í því að bjóða opinbera þjónustu út?

    Eini grundvallarmunurinn er sá að á milli greiðanda og notanda er búið að bætast við fyrirtæki sem er með arðsemiskröfu sem tekur hluta af peningunum og greiðir út í arð til hluthafa.

  4. Er ekki stór hluti af akstrinum hjá einkaaðilum, nú þegar? Það er einnig alltof dýrt að borga stakt far! Það er ekki heillandi peningalega að láta bilinn standa og fara í strætó. Og hver er kostnaðurinn við að innheimta fargjöld?

  5. Hvað er hann að meina með þessu:

    >Hvergi á Norður­lönd­um reka sveit­ar­fé­lög­in strætó sjálf

    Köben rekur eigin strætó, ég sé ekki betur en það sé líka þannig í Osló.

    Er maðurinn bara blákalt að ljúga?

Leave a Reply