Trausti segir að Reykjavík ætti að hætta að reka Strætó með Sjálfstæðisflokknum

6 comments
  1. Félagshyggjuáróður að skyggja verulega fyrir hjá sumum.

    Hún dettur hratt í stéttaskipt samfélag eins og hann talar fyrir. Góðar samgöngur í ríku sveitarfélögunum og þau með minni tekjustofn hafa ekki efni á að reka almenningssamgöngur.

    Það sem er líka skondið er að að stjórnir Sjálfstæðisflokksins sjá um meirihlutann af framlögum til Strætó.

    “Rekinn með hagnaði”. Ef styrkir eru ekki teknir með þá er Strætó rekinn með 7 milljarða króna tapi. Kostnaður er 9 milljarðar og tekjur 2 milljarðar.

    Þetta er svo langt frá því að vera hagstætt að það þarf ekki að tala um það.

  2. Persónulega finnst mér verðin á árskort um vera orðin rugluð. 2020-2021 fékk ég ungmenna-árskort á 25.000kr~ minnir mig. Nú er það komið upp í 45.000kr.

    Það er ódýrara en að reka bíl. En nú er lítill kostur á að vera í skóla án þess að vinna til hliðar…

    45.000kr er meira en gjöldin fyrir önn í skólanum og námsbækur lagt saman…

  3. Mjög fyndið að kenna Sjöllum alfarið um rekstur Strætó, eins og aðrir flokkar hafi aldrei komið að rekstrinum, svona eins og Piratar sem eru Varaformenn Strætó td.

  4. Málið er að strætó kerfi virkar ekki sem tekjulind, en það er samt sem áður tekjulind fyrir skattinn, ókeypis í strætó? Fólk ferðast meira og notar tækifærið að eyða meiri pening, og vsk fær sitt og allir fæ sitt.

  5. Hljómar meira eins og hann sé að segja að fólk ætti að hætta að kjósa Sjálfstæðisflokkinn til valda…sem er 100% rétt hjá honum.

    Eða, eins og margt af því sem Sósíalistar segja, að það ættu bara augljóslega að vera til meiri peningar einhvern veginn. Sem er svosem líka satt, en erfitt að gera að veruleika, nema maður amk. geti farið með löggjafarvaldið og breytt skattakerfinu og áherslum ríkisins. (Kannski innheimt meiri fjármagnstekjuskatt og sótt meira í sjávarútveg eða bankana)

    Ég efast um að Reykjavík geti praktískt séð rekið svona kerfi án ríkisins eða hinna sveitarfélaganna á svæðinu.

    Svo það hljómar bara aftur eins og þetta sem mörg okkar hafa talað um lengi, sem er að við þurfum einhvern veginn að mynda ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins.

Leave a Reply