**Heil og sæl,**

Í dag er gengið til kosninga á Íslandi og hafa eflaust margir mikið um málið að segja, Þannig að til að halda svæðinu okkar hreinu þá var ákveðið að slá í einn stórann þráð um málið. Við vonumst til að sjá markverðar og málefnalegar umræður um kosningarnar og mögulega stjórnarmyndun.

Hver er ykkar draumastjórn? Hvers vegna fór atkvæði þitt á þann veg sem það fór? Hvern viltu helst sjá á þingi? hvern viltu helst ekki sjá á þingi? hvaða hugmyndir finnst þér skipta Íslensku samfélagi mestu máli? og svo lengi mætti telja.

**Hello everyone,**

Today is election day in Iceland and without a doubt do many people have alot to say about this, therefore we’ve decided to make an election night thread in an effort to keep our place on the internet clean. We hope to see some matter of fact discussions on a possible new form of government.

What is your dream cabinet? Why did your vote go the way it did? Who would you most like to see in parliament? who do you not like to see in parliament? what ideals do you think matter the most to the society in Iceland? I hope to see what expats have to say, your perspective on Icelandic society is significantly different than ours.

​

**Hlekkir/links**

​

[Kosning.is](https://www.stjornarradid.is/verkefni/kosningar/althingiskosningar/althingiskosningar-2021/) – Allt um kosningar 2021

​

36 comments
  1. Ég vona bara að flestir fari að kjósa því hvert atkvæði skiptir máli, allt til þess að miðflokkurinn fái ekki þingmann.

  2. Hér er mín spá fyrir kosningarnar.

    Ríkisstjórnin er að fara að halda velli með 34 til 36 þingmenn.

    Eins og venjulega fá Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur aðeins hærra hlutfall en skoðanakannanir gera ráð fyrir. Píratar, Samfylking og aðrir flokkar sem treysta meira á ungt fólk og flökkufylgi fá lægra hlutfall. Píratar munu fá sína verstu kosningu síðan flokkurinn var fyrst í framboði.

    Miðflokkurinn, Flokkur Fólksins og Sósíalistaflokkurinn ná allir mönnum inn sem mun veikja stjórnarandstöðuna enn frekar á næsta kjörtímabili.

  3. Mér finnst það ætti að vera hámark á flokkum sem geta boðið sig fram. Aukinn fjöldi flokka á þingi gerir hlutina alltof flókna. Að geta ekki boðið sig fram með x flokk því þú ert með aðeins öðruvísi skoðanir er alveg stórfurðulegt að þurfa stofna nýjan flokk. Flokkarnir eru orðnir alltof mikið cult þar sem ein stefna ræður og allir fylgja flokksformanni í einu og öllu. Þetta er leiðinleg pólitík. Þyrftu að vera Max 5-7 flokkar sem mega bjóða sig fram.

  4. Tölurnar eru komnar inn.

    Dreymdi í nótt:

    D: 24%
    B: 17%
    VG: 9,7%
    M: 4%
    Sósíalistar: 8.7%
    Viðreisn: 13%
    Píratar: 11.7%
    Flokkur fólksins: 6%

    D fékk þrjá auka þingmenn af því simmi komst ekki á þing og sósíalistar fengu fimm en misstu einn mann af því það má ekki fá fleiri en fjóra þegar maður er nýr flokkur. Ég var líka hissa en svona eru bara reglurnar.

    Samfylkingin vildi ekki lengur vera með og ákvað að hætta í kosningum, sem hljóta að teljast mestu tíðindin í pólitík í mörg ár.

  5. Ísland er það land þar sem lýðræðisatkvæði manns gildir hvað mest. Þótt maður búi í Reykjavík gildir það meira en atkvæði í flestum öðrum lýðræðisríkjum.

    Afsökunin “Það skiptir ekki máli hvað ég kýs, þetta er bara eitt atkvæði til og frá” er ekki gild og *sérstaklega* ekki á Íslandi.

    Ef þú hefur kosningarétt, **farðu að kjósa**.

  6. Kýs ekki í þetta skiptið af tæknilegum ástæðum, en vona svo sannarlega að sem flestir landar nýti rétt sinn, og ætla að fylgjast með. Spái Vinstri miðju stjórn með VG,XB,Samfó og Viðreisn.

    Vona að fuglinn fái frí og Simmi & Co éti það sem úti frís.

  7. Fór á Kjarvalsstaði til þess að greiða atkvæði og verð að segja að þetta er þónokkuð lélegt listasafn. Voru bara með 11 lista þarna

  8. Munið krakkar, það er ekki í boði að væla eftir á ef þið hafið rétt til að kjósa en settuð ekki ykkar atkvæði í kassann. Bara 5 tímar eftir, drífið ykkur!

  9. Get ekki kosið, er ekki ríkisborgari en býr hérna. Mig langar að sjá xP, xS, xV ríkistjórn en held ekki. Ég spái að það verði xD, xB og Viðreisn/Vinstri Græn.

    Please prove me wrong Iceland

  10. Ætla ekki að gefa upp hvað ég kaus en ég þrái breytingar af öllu mínu hjarta og hef beðið eftir þeim allt frá hruni. Ég vil frí frá xD og xB, þeir og við þurfum hvíld. Treysti ekki xF, xY, xO eða xM sérlega mikið. Mín draumastjórn er því xS, xP, xC, xJ og miðjuflokkurinn VG má fljóta með.

  11. Er ekkert live chat neins staðar á þessar kosningar? Afhverju er Rúv ekki komið með chat eins og twitch? Mér finnst þetta fáránlegt.

  12. Karl Gauti legit pirraður þarna í viðtalinu á stöð2, lol, það var eiginlega sorglegt að horfa uppá þetta

  13. Fyrstu pælingar.

    Sjálfstæðisflokkur og Flokkur fólksins að koma á óvart svona fyrst um sinn.

    Samfylkingin hlýtur að skipta um formennsku, höfðu öll tækifæri fyrir sterkri sókn í þessum kosningum og misstu það alveg niðrum sig.

    Og ég vona að ég sé ekki að jinxa neitt en, [BÆBÆ SIMMI!](https://youtu.be/LDU_Txk06tM?t=66)

  14. Besti fréttir kvöldsins fyrir mig er vonandi Miðflokkurin er fara.

    Búinn að sjá “Tommi á Þíng” á mörgum stöðum en aldrei búinn að heyra eitt orð frá honum, ég veit ekki neitt um hann bara hann er eigendur Tommi Burger.

  15. Framsókn gjörsamlega að redda þessu kvöldi, Sigurð Inga sem næsta forsætisráðherra!

    Skil ykkur vel Íslendingar að slökkva í þessari vinstri/jafnaðarmanna sveiflu, tóm tunna að sjálfsögðu

  16. Have FF pinched about 3-4% of Viðreisn’s support. The polls before the election had Viðreisn on about 9-11% and FF between 4-6% and up to about a week ago, it was looking increasingly liking that FF would have 0 or at the most sneak 1-2 MPs in. Seems like Inga’s performance in the debate has paid off for them!

    PS can anyone explain Framsókn’s success? I’ve heard people say they like Einar and Lilja, and Sigruður seems a no-bullshit nice enough guy, but hardly inspiring. Then again, they´ve lost all the nutters to Miðflokkurinn too.

    Jesus, kannski íslendingar fréttamenn þarf að borða smá edible eða eitthvað fyrir kósning. Talk about wooden! Það var bara smá fyndin frá Bogi um tölvan segir nei, en bara ekkert. Tough crowd!

  17. Ríkisstjórnarflokkarnir með 41 þingmann og tæp 60% atkvæða.

    Sabine, borgarfulltrúi Samfylkingar: Ég held að fólk vilji breytingar!

    Hmm.

  18. Stuðningur þjóðarinnar við ríkisstjórnina og íhaldssama miðjupólitík verður æ skýrari. Það kemur ánægjulega á óvart að jafnframt hljóti hægri sinnuð ruddapólitík (Miðflokkurinn og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinm) ekkert brautargengi.

    Á sama tíma vakna svo spurningarnar um vinstri flokkana.

    Hvað finnst ykkur vinstra fólki um frammistöðu vinstrisins í kvöld? Það er ljóst að vinstri flokkar hafa sjaldan eða aldrei staðið verr að vígi en akkúrat núna. Klassískir sósíaldemókratískir flokkar eins og Samfylkingin höfða einfaldlega ekki til verkafólks og miðstéttarinnar. Þeir þurfa að taka pokann sinn og horfa á eftir atkvæðum til tækifærissinnaðra eins-málefnis-flokka eins og Flokks fólksins.

    Og líklega hafa vinstri menn á Íslandi aldrei verið fjær því að mynda sameinað afl gegn hægri flokkunum. Nokkuð sem er sjálfgefið á öðrum Norðurlöndum. Hvað veldur því að vinstrið á Íslandi er svona afspyrnu slappt?

  19. Myndatökumaðurinn á bráðamóttökunni á skilið launahækkun fyrir besta brandara kvöldsins með þessari myndatöku í viðtalinu við öryggisvörðinn.

  20. Pælingar,

    Sósíalistar sem sumar kannanir spáðu 6 þingmönnum fá núll. Ekkert traust á forystunni? Mjög mikil umfjöllun sem flokkurinn fékk skilaði engu.

    Miðflokkurinn tapar en SDG kemst inn, helvítis fokking fokk hver kaus hann? 4 ár af þeim manni til viðbótar…

    Flokkur fólksins virðist hafa náð sér á flug með vel skipulagðri félagsmiðla herferð. Klárlega 1 af 2 sigurvegurum kvöldsins. Inga Sæland er samt ekki skarpasta né klóknasta manneskjan á þingi. Sé ekki að þau geti gert neitt með sína þingmenn.

    Píratar geta verið sáttir, eru að verða fastur kostur á kjörseðli margra aftur og aftur. Eru að áskrifendur að 10% fylgi sem er nokkuð góður árangur fyrir originally óánægjuframboð.

    Sama með Viðreisn sem þó fór inn í þessar kosningar sem væntanlegur stjórnarmyndunar flokkur ef að það færi illa fyrir ríkisstjórnina. En nei bæta bara 1 við sig sem er nokkuð gott miðað við aðra. En ekki það sem þau miðuðu við.

    Samfylkingin heldur sínu og geldur fyrir þá tilraun sína að reyna að spila sig sem stóra vinstri pólinn á móti Sjálfstæðisflokknum. Án þess að vera með nein skýr vinstri málefni gagnvart kjósendum.

    VG klárlega að gjalda fyrir að hafa sett til hliðar grunngildi sín í stjórnarsamstarfinu. Hafa verið sýnileg í samstarfinu sökum þess að hafa forsætisráðherra og ráðherra í málaflokkum sem hefur mætt mikið á hjá þeim. Nýlegt útspil umhverfisráðherra rétt eftir þinglok hjálpaði ekki á landsbyggðinni.

    Framsókn er sigurvegari kvöldsins. Náðu miðjunni og óákveðnum kjósendum. Spiluðu sig sem óumdeildan og öruggan kost.

    Sjálfstæðisflokkurinn er líka kannski að ná einum af mestum árangri sínum í langan tíma að einfaldlega halda sínu.

    Overall þá sigraði miðjan og óánægjuframboð þessar kosningar. Öfgar-hægri/vinstri var hafnað.
    vinstrið tapaði eins og oftast þegar vel gengur efnahagslega. Og hægrið hélt sínu.

    Heilt yfir einstaklega leiðinleg kosningabarátta. Engin stór mál og status quo vinnur daginn.

  21. Mjög ánægður að fá enn á ný staðfestingu á því að Reddit sé bergmálshellir vinstra fólks. Eina slæma við kvöldið var að Rósa Björk komst inn og Píratar héldu sínum þingmönnum.

  22. Vonbrigði fyrir mig að kjósendur hafi svo lítinn áhuga á róttækum stjórnmálum, við sem erum þar megin þurfum að gera betur. Ég vil sjá stóran Sósíalistaflokk á íslandi sem kemst til valda, það er mjög, mjög langt í það ennþá, sýnist mér.

  23. Ég ímynda mér að svarið liggi dálítið í ástæðunum á bak við því “Vinstri-hreyfinguna grænt framboð” var skilgreindur sem miðjuflokkur hér að ofan, og Píratar sem vinstri flokkur.

    Skortur á samstöðu hefur loðið við vinstri hreyfinguna svo langt sem elsta fólk man.

    Svo er kannski önnur útskýring á “overflowinu” hjá Pírötum að þetta er flokkur sem staðsetur sig ekki á vinstri-hægri kvarða. Hann tekur sumt frá hægri, og annað frá vinstri. Sem sagt, Píratar eru, og hafa alltaf verið, miðjuflokkur.

    Ég myndi því túlka niðurstöðu a á þennan veg

    Hægri: D+C+O = 21 þingsæti = 33.1% atkvæða
    Miðja: B+M+P = 22 þingsæti = 31.3% atkvæða
    Vinstri: V+S+F+J = 20 þingsæti = 35.4% atkvæða

    Vinstri er sem sagt með flest atkvæði, en fæst þingsæti. Þar munar mestu um klofninginn, sem orsakar að vinstri-atkvæði falla dauð. Flokkur sem nær ekki 5% fylgi fær enga þingmenn, þ.a. í praxís skiluðu vinstrisinnuðustu kjósendurnir (J, 4.1% atkvæða) inn auðu í stað þess að styðja annan blæ af vinstri (V, S, F). Að skila auðu hefur í raun sömu áhrif og að kjósa stærsta flokkinn, þannig að Sósíalistaflokkurinn er í raun hægri flokkur aem styður Sjálfsstæðisflokkinn á súrrealistísan máta.

    Þetta er klassísk hegðun á vinstri vængnum, enda er kosningakerfið klárlega “rigged”. Þ.e.a.s. í hag þeirra sem kunna að lesa reglurnar, læra af fortíðinni, reikna, draga skynsamlegar ályktanir og starfa með fólki með ólík sjónarmið.

    Nú er áhugavert að skoða hvaða mögulegar ríkisstjórnir eru raunhæfar, í ljósi þess að margir ekki-hægri flokkar eru fyrirfram búnir að gefa til kynna með einum eða öðrum hætti hvaða samstarf er fyrir neðan virðingu þeirra.

    S mun ekki vinna með D.
    J mun ekki vinna með D eða C. Líklegast ekki heldur B, V, eða S, amk. ekki friðsamlega.
    Enginn vill vinna með M, nema etv O.
    P mun ekki vinna friðsamlega með V, B, D.

    Ég les það sem svo að gerlegar ríkisstjórnir væru því:

    Hægri: BDC
    Miðja: BDV, BDF
    Vinstri-við-miðju: BVSC
    Vinstri: BVSF

    Sem sagt, vinstri stjórn getur einungis orðið að veruleika ef miðjuflokkurinn B ákveður að verða vinstri flokkur. Einnig þyrfti V að samþykkja endalausar söguskýringar S um að V séu svikarar við málstaðinn og að S sé hinn sanni trúarleiðtogi vinstri armsins

    Vinstri armurinn gerði upp á bak, nú sem fyrr, og var því hvorki stjórntækur eða marktækur, þrátt fyrir góðar hugsjónir.

    Tekið skal fram að ég kýs VG og tel þau hafa staðið sig frábærlega í leiðtogahlutverki sínu í ríkisstjórn.

Leave a Reply