Nú hafa líklega margir tekið eftir því að framsóknarflokkurinn er sterkur í skoðanakönnunum og eflaust þekkið þið ótrúlegasta fólk sem er allt í einu að hugsa um að kjósa Framsóknarflokkinn.

Nú vil ég ekki fara leynt með það að ég er ekki aðdáandi Framsóknar. Ég er hins vegar oft raunsær þegar flokkar sem ég er ekki aðdáandi gengur vel og skil hvað dregur fólk að og svo framvegis. En með Framsókn er eitt stórt vandamál. Þessi flokkur virðist ekki standa fyrir neitt. Þessi [stefnuskrá](https://framsokn.is/nyjast/frettir/framtidin-raedst-a-midjunni-2/) þeirra er það lengsta sem ég hef lesið um ekki neitt

Tvö stærstu málin sem kjósendur næstum allra flokka sögðu að væru mikilvægust í þessum kosningum voru loftslagsmál og heilbrigðismál. Mál sem að Framsóknarflokkurinn er ekki að fara að snerta af því að það þarf hugrekki til að taka alvöru afstöðu þar. Og það á við um fleiri málefni, þeir hafa næstum enga skoðun á einu né neinu. Þeir eru flokkurinn sem segir “bara hvað sem er” þegar þú spyrð hvað þeir vilja í matinn en ef þú stingur upp á einhverju fer hann að malda í móinn.

Fólki líst rosalega vel á Sigurð Inga en ef hann væri matur væri hann mjólkurkex. Ég set hann í sama flokk og Loga Einars varðandi karisma. Ég skil að fólki líki við Sigmund Davíð ef það hefur sömu skoðanir og hann, það er allavega karakter.

Einhvern vegin finnst mér að hneykslismálin með Lilju og svo Vegagerðina hefðu verið miklu stærri ef þau hefðu tengst Sjálfstæðismönnum.

Og að lokum þá vil ég að þið vitið að Framsóknarflokkurinn er bara eins og þeir flokkar sem hann er með í ríkisstjórn, ef það verður hægri stjórn eru þeir hægriflokkur og ef það er vinstri stjórn verða þeir vinstri flokkur. Þið vitið ekkert í hvora áttina það verður.

Ég biðst afsökunar á þessu ranti hérna en mér líður eins og ég sé að taka klikkunarpillur.

Moddar, ef ég er að brjóta reglur þá bara hendið þið þessu út. Ég er búinn að fá mína útrás.

11 comments
  1. Ég veit hvað þú ert að fara en stóru flokkarnir eru eins “einsmáls” flokkar. B, D, V og S* eru með það mikla breidd að þeir hafa skoðun á öllu (sem er að mörgu leiti gott) en við það verður hver og ein skoðun mjög lítis vægi. Allir þessir flokkar standa fyrir betra samfélagi með aðeins mismunandi áherslum og aðferðum.

    Hinir litlu flokkarnir eru flestir eins- eða tveggjamálaflokkar, sérstaklega þeir sem aldrei hafa verið í stjórn og aldrei reynt á fjölbreytileika.

    * í þessum kosningum hefur S komið með mjög sterk “við ætlum að gera Ísland að sósíalískri þjóð” skilaboð, m.a. því flokkurinn hafði nánast þurrkast út

  2. Ég held þú svarir spurningunni þinni svolítið sjálfur. Stór hluti Íslendinga er ánægður með kjör sín og meta sem svo að á Íslandi sé gott að búa, jafnvel betru en í nágrannalöndunum. Það vill bara halda áfram á sömu braut… Hægar en öruggar breytingar til framfara. Þessi hópur telur að óþarft sé að fara í stórar kerfisbreytingar á íslensku samfélagi. Fyrir þennan hóp eru ríkisstjórnarflokkarnir, þá sérstaklega Framsókn góður kostur. Það þarf ekki alltaf að snúa öllu á haus.

    Flokkurinn staðsetur sig á miðjunni, líkt og flestir kjósendur. Það er því eðlilegt að stefnan höfði til margra.

    Framsókn hefur líka komist í gegnum þetta kjörtímabil án stórra hneykslismála. Ólíkt bæði VG og sérstaklega Sjálfstæðisflokki. Það að þú dragir upp eitthvað Vegagerðarmál, sem enginn man eftir, sýnir ágætlega fram á þetta. Ég hugsa að flestir telji að ráðherrar Framsóknar hafi staðið sig með ágætum síðustu 4 ár.

    Í dag er Framsókn “sætasta stelpan á ballinu”. Þ.e. það eru allir reiðubúnir að vinna með Framsókn, og draumaríkisstjórn flestra inniheldur flokkinn. Sterkur Framsóknarflokkur dregur því úr líkum á stjórnarkreppu og óstöðugleika. Fæsta dreymir um óstöðugleika strax eftir Covid og vilja bara fá gott fólk til að stjórna landinu. Framsókn boðar “leiðinleg” stjórnmál, en er það ekki það sem flestir vilja, að þurfa ekki að hafa áhyggjur af stjórnmálunum.

    TLDR útgáfan er Framsókn er fyrir fólk sem telur að stjórnvöld séu á réttri leið og vilja fá stöðugleika við stjórn landsins.

    Það getur verið erfitt að skilja af hverju fólk kýs aðra flokka en maður sjálfur, en vonandi hjálpar þetta eitthvað smá 🙂

    Er svo ekki best að kjósa bara Framsókn?

  3. Sammála með Sigurð, skil ekki alveg afhverju það er látið eins og hann sé með eitthvað charisma. Finnst Ásmundur samt hafa staðið sig vel, held hann sé helsta ástæðan fyrir að xB gengur vel, Lilja á líka sitt fylgi.

  4. Viðhalda status quo

    Skil ekki hvernig þú færð út að Logi sé á sömu blaðsíðu og Sigurður Ingi varðandi persónutöfra.

  5. Já, Framsóknarflokkurinn er frekar litlaus miðað við hvernig hann var fyrir nokkrum árum og áratugum, en það er kannski bara nákvæmlega það sem margir vilja kjósa – bragðlausa og óspennandi mjólkurkexið. Ég er kannski með einhverja glórulausa pælingu hérna en mín upplifun af stjórnmálum sl. ára er að hinir flokkarnir séu hálfpartinn að breytast í einhverjar skrípamyndir af sínum eigin einkennum og málefnum.

    Það sem stendur í stefnumálum er orðið aukaatriði, það sem skiptir máli er að styðja stefnumálið hjá okkar liði og lasta stefnuna hjá hinu liðinu. Stundum finnst mér jafnvel eins og að frambjóðendur og flokksmeðlimir hafi flett upp hugmyndafræði sinna flokka á Google og séu í einhverjum hlutverkaleik, þar sem ekki má bregða út af handritinu. Bláa liðið *á* að gera þetta og rauða liðið *á* að gera nákvæmlega öfugt. Síðan á helst ekki að vera neinn millivegur eða málamyndanir um eitt eða neitt – til hvers ættum við líka að leyfa hinum að fá einhverju framgengt? Við erum góða frjálshyggjan/jafnaðarstefnan/sósíalisminn/annað sem vitum hvernig hlutirnir eiga að virka og ætlum okkur að sigrast gegn hinni illu frjálshyggju/jafnaðarstefnu/sósíalisma/annað, þess vegna eiga stjórnmál að vera zero-sum game þar sem góða liðið sigrast á hinu illa.

    Ég gæti vel ímyndað mér að fólk sem nennir ekki svona löggur á móti bófum identity stjórnmálum sé tilbúið að kjósa Framsóknarflokkinn.

  6. Ég er svo sannarlega ekki í hópi þeirra kjósenda sem Framsókn höfðar til eða vill yfir höfuð fá til sín enn… kannski er nóg af fólki sem er búið að fá dálítið of mikið af vel krydduðum sjarmörum og skituni sem þeim fylgdi og það fólk langar bara þó nokkuð í leiðinlegt en fyrirsjáanlegt mjólkurkex?

    Þeir eru svona að höfða beint til þeirra sem sjá enga ástæðu til að breyta pitsupöntunini sem við höfum verið með síðustu 10 ár svo þótt það sé kannski ekki það sem neinn langar í – en hentar betur en meira rifrildri yfir því hvað á að koma í staðin fyrir núverandi álegg.

  7. það finst mörgum Ásmundur hafa staðið sig mjög vel á tímabilinu og hafa náð fram mörgum bótum á réttindum barna, einnig hef ég heyrt mjög mikið af jákvæðum hlutum sem hafa skeð á kjörtímabilinu í samgöngum á allavega suðurlandinu. Til dæmis herjólfsmálin, fyrir kjörtímabilið var það þannig að ef Herjólfur komst ekki í landseyjahöfn og fór til Þorlákshafnar hækkaði verðskráin sirka þrefalt, Vestmannaeyjingar voru auðvitað ekki sáttir með þetta, Sigurður Ingi setti það á Herjólf að það ætti að vera sama verð hvora höfnina sem hann fór í og verðið ætti að vera verðið sem kostar að fara til Landeyjarhafnar, þetta er það sem fékk Geir Jón fyrrverandi lögreglustjóra Reykjavíkur og mikinn Sjálfstæðismann til að verða Framsóknarmaður

  8. Ég hef alveg misst af þessum hneykslismálum um Lilju, áttu link?

    Varðandi Vegagerðina þá er af nægu bulli að taka þar innanhúss, fyrir utan ráðninguna á dýralækninum þá er toxic andrúmsloft innanhúss og endalaus smákarlapissukeppni um fáránlegustu mál. hvernig þeir hegða sér í vegamálum gagnvart höfuðborgarsvæðinu og umferðarþyngstu svæðunum hefur kostað mörg mannslíf í gegnum tíðina, sérstaklega áður en Reykjanesbrautin var tvöfölduð og valdir kaflar á Hellisheiðinni.

  9. Ég á nokkra vini sem eru hægri sinnaðir en hata Sjálfstæðisflokkinn svo þeir ætla að kjósa Viðreisn eða Framsókn.

  10. Þeir hittu appathy tíðaranda naglann beint á hausinn með… er ekki bara best að kjósa framsókn.

    Riddle solved

Leave a Reply