Þórhildur Sunna: Fyrir neðan virðingu kennara að starfa í ísbúð

6 comments
  1. Ég skil svo sem alveg hvert hún var að fara með fyrri ummælum sínum. Þetta er hrikalega óheppilega orðað hjá henni. Hefði getað sagt að fólk eigi að fá að bíða þar til störf fást sem hæfa þeirra menntun eða hvað annað. Allt annað en þetta í rauninni.

  2. Hvernig fer maður að því að vera með svona lítinn charisma. Ég er ekki sammála þessari nálgun, ég er meira í survival of the fittest megin, ef þú ert menntaður eitthvað og ekkert með aðlaðandi credential þá á ríkið ekkert að búa til career fyrir þig.

    Ég með mína neikvæðni að sjálfsögðu en við eigum sömuleiðis til helling af menntuðu drasl vinnuafli.

    Það hlítur bara að stefna í martraðar kosningu fyrir Pírata og VG á lau

  3. Þetta er fullkomið stéttasnobb hjá Þórhildi Sunnu.

    Í orðum hennar felst að til séu ákveðin störf sem fólk með háskólamenntun eigi ekki að vinna, því það sé fyrir neðan virðingu þeirra. Og hvað segir það okkur um fólkið sem þarf óumflýjanlega að vinna þessi störf? Að það fólk beri eitthvað minni virðingu fyrir sjálfu sér – og sé minna virði fyrir samfélagið?

    Svona drambsemi varpar ljósi á hvað Þórhildur Sunna og sumir aðrir Píratar hafa lélegt skynbragð á samfélagið.

  4. Kannarar eru sérfræðingar á sínu sviði. Auðvitað er það ákveðin auðmýkining að eyða nokkrum árum í háskólanám til þess að fara að vinna við eitthvað sem krefst engrar sérhæfni. Þórhildur er bara segja hið rétta hreint út. Vandinn er að Íslendingum finnst enn ekki að kennarar séu nógu virðingaverð stétt og finnst jafnvel þeir bera jafn mikils samfélagsvirði og einhver sem getur togað í haldfang á ísvél.

    Og ég segi þetta hafandi starfað í þó-nokkur ár við afgreiðslustörf.

  5. Man alveg eitthvað eftir skólaáranunum

    Var alveg slatti af rusl kennurum, minnihluti af heildinni en allt of mikið

    Og heyri enn frá yngri fólki í fjölskyldunni, þetta hefur ekkert breyst.

    Er ekki alltaf að vera auglýsa kennarastörf? vill ekki vera leiðinlegur en hversu glataður kennari þarftu að vera til að geta ekki fundið þér starf við að kenna

Leave a Reply