
Ég er að drepast úr forvitni. Maðurinn segir: “klisjur eins og „þú vissir að hverju þú gekkst þegar þú keyptir fasteign í bænum.“ Hún sé ekki bara dónaleg heldur út í hött.” en útskýrir ekkert hvers vegna þessar fullyrðingar séu dónalegar klisjur sem eru út í hött.
5 comments
Við þurfum samt að spá aðeins í hvernig þróun á að verða á miðbænum, við erum búin að bæta við milljón túristum seinustu 20 árin en samt er miðbæjar svæðið nokkurnveginn jafn stórt og fyrir 20 árum. Væri ekki eðlilegra að fara að skilgreina einhverjar götur sem “blandaða atvinnustarfsemi”. Ég veit að fólk býr þarna en réttlætir sú staðreynd það að nágrannar eigi rétt á að ýta atvinnustarfsemi út úr nágrenninu, atvinnustarfsemi sem satt að segja borgar mikið meira í skatt en fólkið sem býr í kring.
Annar þessara staða spilar 80’s og 90’s tónlist
Er þetta ekki bara atriði úr skaupinu?
Þurfum nú bara að fara íhuga að því að færa miðbæinn, alveg út í hött að hann skuli vera í útjaðri Reykjavíkar
Ég sting upp á að færa hann í árbæinn eða breiðholtið
Færum djammið í Grensásveg þar eru risa húsnæði á jarðhæð sem hægt væri að gera af flottum klúbbum, það lifa hvort eð er aldrei neinar verslanir þarna, bara fyrirtæki í kring, meira miðsvæðis og nær stórum umferðar æðum ferja fólki til og frá hratt.
Miðbærinn getur áfram verið með kósý kaffihús.
> Ég er að drepast úr forvitni. Maðurinn segir: “klisjur eins og „þú vissir að hverju þú gekkst þegar þú keyptir fasteign í bænum.“ Hún sé ekki bara dónaleg heldur út í hött.” en útskýrir ekkert hvers vegna þessar fullyrðingar séu dónalegar klisjur sem eru út í hött.
Líklega er hugsanagangur hans sá að óháð því hvort húseign hans sé miðsvæðis eða annars staðar þá er það engu að síður íbúðarhúsnæði, á stað þar sem skipulagsyfirvöld gera ráð fyrir íbúðarhúsnæði, í sveitarfélagi þar sem gildir lögreglusamþykkt ([Nr. 1097](https://www.stjornarradid.is/media/innanrikisraduneyti-media/media/Skyrslur/B_nr_1097_2008%5B1%5D.pdf)) þar sem kemur fram að ,,Bannað er að hafast nokkuð að sem veldur ónæði eða raskar næturró manna.”
Mér finnst krafa hans um næturró í eigin íbúðarhúsnæði fullkomlega réttmæt og sanngjörn.