Kannast einhver við lagið sem við íslendingar syngjum Maístjörnuna iðullega við? Ég veit að þetta er einhver sameiginlegur sósíalískur söngur og að á austurblokkinni var þetta sama lag sungið með öðrum texta.

[https://www.youtube.com/watch?v=uxntyu0smhE&ab_channel=H%C3%A1sk%C3%B3lak%C3%B3rinn](https://www.youtube.com/watch?v=uxntyu0smhE&ab_channel=H%C3%A1sk%C3%B3lak%C3%B3rinn)

7 comments
  1. Lagið er ekki erlent heldur frumsamið af Jóni Ásgeirssyni. Halldór Laxness orti aftur á móti textann með annað lag í huga, og það lag var rússneskt þjóðlag. Hér er upptaka af Halldóri (sem þá var kominn með Alzheimersjúkdóminn, eins og heyrist kannski af því hvernig hann talar) raula textan við lagið sem hann hafði í huga þegar hann var saminn [https://www.youtube.com/watch?v=2mzdUGGHSns](https://www.youtube.com/watch?v=2mzdUGGHSns)

    En lagið sem þú vísar í samdi Jón Ásgeirsson svo seinna. “Sungið undir einhverju slagaralagi” eins og Halldór segir í viðtalinu við Pétur Pétursson.

  2. Flókið. Halldór laxness samdi ljóðið undir áhrifum frá rússnesku þjóðlagi. Hann mundi ekki hvað lagið hét .Þú getur heyrt þetta lag hérna:[https://www.ruv.is/frett/2020/05/01/svona-song-halldor-laxness-maistjornuna-sjalfur](https://www.ruv.is/frett/2020/05/01/svona-song-halldor-laxness-maistjornuna-sjalfur)

    Þetta lag er þó ekki það sem jón ásgeirsson samdi fyrir ljóðið en það lag er frumsamið. Það er helst að spyrja rússa hvað lagið sem Halldór notaði heitir.

Leave a Reply