Alltaf gott að hafa raunverulegar niðurstöður ákvarðanna til að rýna virkni þeirra. Það er samt ekkert gefið að það verði gert, það virðist oft skorta þol í raunverulega sjálfsrýni hjá leiðtogum okkar.
Ég veit ekki hvort það er þægilegra að horfa á prósentulega breytingu, brúttó aukningu á dauðsföllum, eða segja sjálfum sér að þetta séu dauðsföll sem eigi að rekja til bóluefnanna en svikula vísindasamfélags-samsærið er að klína þessu á COVID… en þetta er kostnaðurinn við ákvarðanir okkar.
Þess má geta að fólk sem kemur hingað, kemur hingað með andlitsgrímur og allan forvara. Gengur um með grímur í bónus, alveg þangað til það tekur eftir því að COVID er klárlega ekki til lengur á Íslandi þó svo að að sé enn til heima hjá þeim.
“ÞetTa eR bArA FLenSA”
Til samanburðar deyja um 10 á Íslandi vegna flensu árlega.
Covid veldur því ekki nema bara 20x fleiri dauðsföllum.
Mér þykir afar sérstakt að þessi fréttamaður skrifi ótvírætt:
>á þessu ári 2022 höfðu 174 látist sökum kórónuveiru í lok júlí
Þegar í tilvísun sóttvarnalæknis kemur fram:
>Og það er útskýrt af Covid **að miklu leyti held ég**. …
og
>Ég hef engar aðrar sérstakar skýringar heldur en Covid á þessari aukningu sem við sáum…
Og nei, ég er almennt ekki á móti bóluefnum og ég held ekki að C19 sé bara eins og venjulegt kvef.
Mér sýnist að við séum núna að borga til baka lægri dánartíðni árin 2020-21 þegar sóttvarnaraðgerðir voru hvað strangastar og fólk í áhættuhópum sem hefði annars dáið náði að lifa lengur sökum verndaðs umhverfis. Mjög kalt að segja það en það hlaut að koma að því að allt þetta fólk myndi deyja á endanum, við getum ekki haft lækkaða dánartíðni að eilífu.
Eitt sinn verða allir menn að deyja, eftir bjartan daginn kemur nótt.
5 comments

https://www.hagstofa.is/utgafur/tilraunatolfraedi/danir-tt/
dánartíðnin í ár er svo ekkert mikið hærri en í ársbyrjun 2017, og þá var enginn heimsfaraldur.
Það væri fróðlegt að sjá nánari tölfræði, t.d. meðalaldur, bólusetningarstöðu og undirliggjandi sjúkdóma þessara 174 einstaklinga.