> Hann segir frá því í bókinni að Unnur Gunnarsdóttir, þá yfirlögfræðingur FME, síðar forstjóri eftirlitsins frá 2012 og nú varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, hafi sagt honum árið 2011 að það væri einfaldlega ekki þörf á frekari rannsóknum á hrunmálunum. Jared fullyrðir að hún hafi kallað hann barnalegan fyrir að halda því fram að mál eins og þau sem áttu sér stað í aðdraganda hruns gætu átt sér stað aftur.
> Í samtali við blaðamann segist hann harma það að ekki hafi verið sett upp varanlegt eftirlits- og rannsóknateymi hjá Fjármálaeftirlitinu. Hann hafi fengið að heyra það að ekki væri þörf á slíku teymi á Íslandi þar sem Danir væru ekki með slíkt. „The Danes don’t have it so we don’t need it. Týpískt íslenskt,“ segir Jared og segir engu hafa skipt þó hann benti á að slík teymi væru í fjármálaeftirlitsstofnunum í Bretlandi, Bandaríkjunum og Sviss.
Ég veit bara ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta. Alveg mögnuð grein, þetta ástand, þessi hræðsla við eftirlit, gagnrýni og ábyrgð á Íslandi gerir mann alveg gráhærðan. Pælið í því hvernig ástandið væri hérna ef við ættum sterkt og fjölmennt fjármálaeftirlit.
>„Fólk er ekki með reynslu og það er alltaf betra tækifæri innan fjármálakerfisins sjálfs. Góður starfsmaður innan FME getur farið til Kaupþings eða Arion banka eða hvað þetta heitir núna og kannski tvöfaldað launin sín. Þess vegna er aldrei vilji til þess að gera eitthvað stórt, því að starfsmaður sem er góður og vill eitthvað betra tækifæri, hann vill ekki gera Arion banka brjálaðan.
3 comments

Þetta er svo rosalega skuggalegt.
Hér er hlekkur að sýnishorni úr bókinni hans (þarft að skrolla aðeins niður). Áhugaverð lesning: [https://static1.squarespace.com/static/5e1614f90dcda22f72b56c36/t/60a76fb84dcb02030b3a7183/1621585855355/IcelandsSecret-sampler-final.pdf](https://static1.squarespace.com/static/5e1614f90dcda22f72b56c36/t/60a76fb84dcb02030b3a7183/1621585855355/IcelandsSecret-sampler-final.pdf)
Í sýnishorninu lýsir hann fyrstu dögunum sínum hjá FME og hluta af tímanum hans hjá Landsbankanum.