Kúlupennar, skíði, timbur og dekk flutt inn frá Rússlandi eins og fátt hafi í skorist

2 comments
  1. Það má svo minna á [þennan lista yfir fyrirtæki sem eru enn í viðskiptum í Rússlandi](https://som.yale.edu/story/0/over-000-companies-have-curtailed-operations-russia-some-remain).

    Íslensku fyrirtækin á listanum eru:
    – Hampiðjan (F) [Hampiðjan svarar](https://hampidjan.com/news/news-article/hampidjan-business-with-russia)
    – Knarr Maritime (F)
    – Marel (D)
    – Naust Marine (D)
    – Eimskip (C) [Eimskip svarar](https://www.frettabladid.is/markadurinn/eimskip-hafnar-nidurstodu-yale-er-ekki-med-starfsemi-i-russlandi/)

    Edit: Hampiðjan og Eimskip segjast ekki vera í viðskiptum en eru þó enn á listanum. Bókstafurinn gefur til kynna einkunn fyrirtækisins.

    – F þýðir að fyrirtækið er að auka viðskiptin
    – D þýðir að fyrirtækið er ekki að auka viðskiptin
    – C þýðir að fyrirtækið hefur minnkað viðskiptin.

    Hér þarf að spyrja sig **hverjum skal trúa?** Aðilum frá fyrirtækjunum eða Yale og tengdum sérfræðingum og uppljóstrurum? Ég er ekki með svarið – en ég man hvernig starfsfólk bankanna talaði korter fyrir hrun… Svo veit a.m.k. hvaða hóp ég hlusta á. Aftur á móti ef fyrirtæki eru ranglega á listanum í langan tíma geri ég ráð fyrir þvi að búið sé að kæra Yale og þá sérfræðinga sem koma að vinnslu listans.

    Hvernig vinnur Yale gögnin?
    > We have a team of experts with backgrounds in financial analysis, economics, accounting, strategy, governance, geopolitics, and Eurasian affairs with collective fluency in ten languages including Russian, Ukrainian, German, French, Italian, Spanish, Chinese, Hindi, Polish and English, compiling this unique dataset using both public sources such as government regulatory filings, tax documents, company statements, financial analyst reports, Bloomberg, FactSet, MSCI, S&P Capital IQ, Thomson Reuters and business media from 166 countries; as well as non-public sources, including a global wiki-style network of 250+ company insiders, whistleblowers and executive contacts. 

Leave a Reply