Það er ekki pólitískur ómöguleiki að fara eftir vilja þjóðar

5 comments
  1. Þegar stjórnmálafólk kemst upp með að segja að það sé pólitískur ómöguleiki að fara eftir vilja þjóðarinnar, þá má vel fara að tala um að lýðræðið hérna standi á brauðfótum.

    Það er klárlega þrýstingur frá einhverju öðru sem ræður för.

  2. Það allra versta við Sjálfstæðisflokkinn er hvað hann, sem stofnun, er einfaldlega ótrúlega góður í pólitík.

    Það er einfaldlega ótrúlegur árangur hjá stjórnmálaflokki sem er með í kringum 25% atkvæða að fá bókstaflega alltaf öllu sínu framgengt. Þrátt fyrir að vera í minnihluta í bókstaflega öllum stórum ágreiningsmálum þjóðarinnar – Og í sumum þeirra meira að segja með öll hin 75% á móti sér.

  3. Það var algjört klúður fyrir stjórnarflokkana að setja þetta ekki í atkvæðagreiðslu þegar skoðanakannanir sýndu að mikill meirihluti væri andvígur aðild, þeir hefðu þá getað staðið við sitt, fengið sínu framgengt og sloppið við að þetta sé notað gegn þeim.

    En er ekki að sama skapi innan eðlilegra marka að stjórn sem vill ekki ESB aðild og mun ekki sækja um ESB aðild leyfi þessari atkvæðagreiðslu að fara fram ef og þegar flokkar sem styðja aðild komast í stjórn?

Leave a Reply