[Fyrsta fréttin af Klaustursupptökunum kom kvöldið 28. nóvember](https://stundin.is/grein/7936/thingmadur-midflokksins-kallar-ingu-saeland-hurrandi-klikkada-kuntu-upptoku/) og í stuttu máli fóru nokkrir þingmenn á bar á vinnutíma þann 20. nóvember, þar sem þeir töluðu vægast sagt ílla um fólk og í þeirra orðum er að finna kvenfyrirlitningu og fordóma gagnvart samkynhneigðum og fötluðum einstaklingum. Upptökurnar voru teknar án vitundar þingmannanna af Báru Halldórsdóttur, bargesti sem sat álengdar og sendi þær síðan til fjölmiðla.

Hér er samantekt upptakanna:

**Gunnar Bragi Sveinsson**

* sagði að Oddný Harðardóttir væri “[algjör apaköttur](http://www.visir.is/g/2018181128769)” og að “[hún veit ekki neitt, kann ekki neitt, getur ekki neitt.](http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/11/28/gunnar-bragi-hraunar-yfir-oddnyju-sem-skildi-samfylkinguna-eftir-med-trudinn-fra-skridjoklum/)”. Gunnar bað hana afsökunar.

* sagði að Írís Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum væri “[helvíti sæt stelpa” og “hún gæti fengið eitthvað í Keflavík. Bara fyrir að vera kona.](http://www.dv.is/frettir/2018/11/30/leyniupptokur-thingmennirnir-voru-ad-tala-um-irisi-en-ekki-aslaugu-ornu-hun-er-helviti-saet-stelpa/)”, fyrst var því haldið fram að um Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og [bað Gunnar hana afsökunar til öryggis](https://stundin.is/grein/7967/).

* sagði “[Hjólum í helvítis tíkina](https://stundin.is/grein/7988/)” um Lilju Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Gunnar Bragi sagði hins vegar að honum þætti vænt um [Lilju, ágæta vinkonu sína, og fullyrti að þau væru búin að gera málið upp sín á milli](https://www.frettabladid.is/frettir/gunnar-bragi-segist-buinn-a-gera-upp-vi-lilju/).

* Gunnar segir um Ragnheiði Runólfsdóttur, sem er afrekskona í sundi sem steig fram í viðtal og opnaði sig um heimilisofbeldi af hálfu sambýlismanns síns til margra ára, “[Já sundkellingin þarna, voruði að lemja hana?](https://stundin.is/grein/7984/hofdu-heimilisofbeldi-i-flimtingum-ja-sunddrottninguna-vorudi-ad-lemja-hana-hahaha/)” segir Gunnar og skellihlær. Ekki hefur komið fram að Gunnar hafi beðið hana afsökunar.

* hugsanlega grín af Freyju Haraldsdóttur, fyrrverandi varaþingmann og talskona Tabú, feminískrar fötlunarhreyfingar, með því að [gefa frá sér hljóð sem hljóðuðu eins og væl úr sel](http://www.dv.is/frettir/2018/11/29/leyniupptaka-hlustadu-thingmenn-gera-grin-ad-freyju-haralds-hermdi-eftir-sel/). Það er ekkert víst að Gunnar gerði þessi hljóð, en á upptökunni þá var hann æstastur af þeim öllum og hefur hann verið tengdur við þessi hljóð frekar en hinir.

* [hæddist að Ingu Sæland og sagði](https://stundin.is/grein/7935/haeddust-ad-madame-saeland-og-reyndu-ad-kljufa-flokk-folksins/) “Þið verðið að átta ykkur á því að þið getið ekkert endalaust látið ‘madame Sæland’ bara grilla ykkur eins og þið séuð ekki til” og “Er það hennar skæl og væl sem mun hvetja fólk til að kjósa flokkinn eða er það ykkar málefnalega afstaða sem það hafið kynnt í hinum og þessum málum?”

* Gunnar og Bergþór sögðu báðir að Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, núverandi þingmanni Samfylkingarinnar, hafi gengið á þá með kynlíf. [Gunnar segir að Albertína, hafi reynt að nauðga sér á dansleik.](https://stundin.is/grein/7946/haeddust-ad-metoo-sogum-og-sogdu-albertinu-hafa-reynt-ad-naudga-ser/)
>”Það er einhver hátíð í samkomuhúsinu í Hnífsdal […] Ég er allt í einu farinn að dansa við þessa stúlku […] Ég sagði bara nei […] en það var bara suðað. Þá var bara eins og einhver hefði verið líflátinn. Hún var brjáluð, hún trylltist, hún grenjaði og öskraði. Ég bara hugsaði, hvað, á ég að ríða henni? Það var algjörlega kreisí.” Viðstaddir hlógu að lokinni frásögninni.

Eftir að upptökurnar komu í dagsins ljós sagði Gunnar “[Við áttum ákveðin samskipti fyrir nokkuð löngu síðan, en nauðgun er alltof sterkt orð og ég er búinn að biðja Albertínu afsökunar á því.](http://www.visir.is/g/2018181128639)”. Mitt mat er það að þessi ásökun er að sjálfsögðu alvarleg og Gunnar segist ekki neita því að eitthvað gerðist, en það er upp á hann komið að fara með málið lengra en hann var auðvitað réttilega straujaður útaf fyrrnefndum ummælum sínum og þessi alvarlega ásökun hefur fengið litla athygli þess vegna.

* ****Flóknasta**** málið eru hugsanlegu brot á lögum um ráðherraábyrgð með [ráðningu Geirs H. Haarde sem sendiherra til Washington árið 2014](http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/11/28/leyniupptaka-gunnar-bragi-skipadi-arna-thor-sendiherra-til-ad-draga-athygli-fra-geir-haarde-eg-var-brjaladur-vid-thig-gunni/) af hálfu Gunnari Braga, sem var þá utanríkisráðherra, til þess að “[eiga inni](http://www.visir.is/g/2018181128803/frettir-birtar-ur-leynilegum-upptokum-af-thingmonnum-midflokks-og-flokks-folksins)” seinna meir, einnig sagði hann “Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Friðriki Ómari.” en [Gunnar bað Friðrik fyrst afsökunar eftir að þetta mál kom upp](http://www.visir.is/g/2018181128736), en Friðrik er samkynhneigður. Sendiherraplottið hefur verið neitað af Gunnari, Sigmundi, Bjarna Ben og Guðlaug Þór en þeir hafa verið [kallaðir á fund á vegum stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd](https://stundin.is/grein/8030/bjarni-fundadi-nylega-med-gudlaugi-og-sigmundi-um-kosti-gunnars-braga/) vegna þessa máls.

* Gunnar Bragi gefur ekki kost á sér í þessum kosningum en ég lét ummælin hans samt fylgja með vegna samhengis ásamt því að hann á ekkert betra skilið.

**Sigmundur Davíð Gunnlaugsson**

* Hann var vel meðvirkur í nánast öllum þeim klám- og karlrembublaðri sem Bergþór (samatekt hans er í kommentum) og Gunnar létu út úr sér en hann á satt að segja ekki roð í hvað þeir sögðu, þó talar hann t.d. um Lilju “[Hún notar kynþokkann](https://stundin.is/grein/7988/tharna-loksins-kom-skrokkur-sem-typpid-mer-dugdi-i/)”, “[Ég er búinn að láta þessa konu yrða á mig aftur og aftur](http://www.visir.is/g/2018181128668)” og að lokum “[henni er ekki treystandi og hún spilar á karlmenn eins og kvenfólk kann](https://stundin.is/grein/7988/tharna-loksins-kom-skrokkur-sem-typpid-mer-dugdi-i/)”.

* þegar Bergþór sagði að Íris væri miklu minna hot í ár þá segir Sigmundur “[og á þeim forsendum segi ég að hún hrynji niður listann](https://stundin.is/grein/7937/karlremba-hja-thingmonnum-midflokksins-hun-er-miklu-minna-hot-i-ar/)”

* þegar talað var um Albertínu og ásakanir Gunnars og Bergþórs um ósiðlega hegðun hennar á balli fyrir áratug síðan segir Sigmundur “[Það voru ýmsir sem sögðu ‘take one for the team’ en Beggi var ekki til](https://stundin.is/grein/7946/haeddust-ad-metoo-sogum-og-sogdu-albertinu-hafa-reynt-ad-naudga-ser/)” sem fékk alla til að hlægja.

* Sigmundur segir að tveir þeirra þingmanna sem sitja við borðið hafi sérstakan áhuga á tveimur konum, Freyju Haraldsdóttir og Albertínu Friðbjörg Elíasdóttir. Ekki er tekið sérstaklega fram við hverja tvo þingmenn hann eigi við, en [sennilega](https://www.frettabladid.is/frettir/likti-eftir-hljoi-ur-sel-egar-freyja-bar-a-goma) eru það Karl Gauti og Bergþór, en hann segir “[Þetta eru konur sem sameina þessa tvo menn](http://www.dv.is/frettir/2018/11/29/leyniupptaka-hlustadu-thingmenn-gera-grin-ad-freyju-haralds-hermdi-eftir-sel/)”. Ein­hver úr hópnum hermdi í kjöl­farið eftir sel.

* fyrsta tilkynning Sigmundar eftir að klausturmálið kom upp var að ráðast á upptökuna sjálfa og gagnrýna það að hann var hleraður, “[Samtöl þingmanna sem sitja saman á góðri stund og grínast hver við annan eru auk þess látin hljóma eins og pólitískt plott](https://kjarninn.is/frettir/2018-11-28-sigmundur-david-alvarlegast-ef-islandi-seu-stundadar-hleranir-einkasamtolum-stjornmalamanna/).”

* þegar Gunnar blaðrar út úr sér með sendiherrakapalinn segir Sigmundur “[Bjarni má eiga það, hann viðurkenndi þetta. Bjarni fór út um víðan völl en niðurstaðan var sú að Bjarni féllst á það að ef þetta gengi eftir, þá ætti Gunnar inni hjá Sjálfstæðismönnum](http://www.visir.is/g/2018181128803/frettir-birtar-ur-leynilegum-upptokum-af-thingmonnum-midflokks-og-flokks-folksins)”

* eftir að upptökurnar komu í dagsins ljós segir hann að “selshljóðin” gætu hafa “[verið reiðhjól að bremsa fyrir utan gluggann](https://www.visir.is/g/2018181209691/mogulega-reidhjol-ad-bremsa-og-einkasamtol-ekki-thad-sama-og-opinber-ummaeli-ad-mati-sigmundar-davids)”. Í sama viðtali sagði hann “fyrirgefðu við alla sem hafa þurft að hlusta á þetta” og hann hefur enn í dag ekki beðist afsökunar á upptökunum.

* þvert á móti fór hann og aðrir þingmenn Miðflokksins í hart gegn þessum upptökum og reyndu að láta umræðuna fjalla um persónuverndarbrot Báru og ásökuðu hana, eins og fyrr kom fram, að hafa ákveðið dulargervi sitt áður en hún mætti á Klaustur og gerðu kröfu um að Persónuvernd leggi stjórnvaldssekt á Báru.

**Bergþór Ólason**

* um Lilju Alfreðsdóttur sagði hann “[Það hefur engin gugga teymt mig meira á asnaeyrunum en hún, sem ég hef ekki fengið að ríða](https://stundin.is/grein/7954/vildu-hefna-sin-lilju-alfredsdottur-hjolum-i-helvitis-tikina/)”, “[Fuck that bitch](https://stundin.is/grein/7984/hofdu-heimilisofbeldi-i-flimtingum-ja-sunddrottninguna-vorudi-ad-lemja-hana-hahaha/)” og örlítið seinna “[Þú getur riðið henni, skilurðu](https://stundin.is/grein/7954/vildu-hefna-sin-lilju-alfredsdottur-hjolum-i-helvitis-tikina/)”, ekki er alveg vitað við hvern hann var að tala við, ég persónulega held að það sé Sigmundur Davíð. En skítaklumpurinn á kúkatertunni er þegar Bergþór segir “[Þarna loksins kom skrokkur sem typpið á mér dugði í](https://stundin.is/grein/7988/tharna-loksins-kom-skrokkur-sem-typpid-mer-dugdi-i/)”

* um Ingu Sæland sagði Bergþór “[húrrandi klikkuðu kuntu](https://stundin.is/grein/7936/thingmadur-midflokksins-kallar-ingu-saeland-hurrandi-klikkada-kuntu-upptoku/)” og “[hún er fokking tryllt](https://stundin.is/grein/7936/thingmadur-midflokksins-kallar-ingu-saeland-hurrandi-klikkada-kuntu-upptoku/)” en [hann hefur beðið Ingu afsökunar á ummælum sínum](http://www.ruv.is/frett/bergthor-bad-ingu-saeland-afsokunar).

Frh. að neðan

15 comments
  1. **Bergþór Ólason (frh.)**

    * þegar talið berst að Ragnheiði Runólfsdóttur “[sá sem lemur Röggu Run, hann á ekki séns á Vesturlandi](https://stundin.is/grein/7984/hofdu-heimilisofbeldi-i-flimtingum-ja-sunddrottninguna-vorudi-ad-lemja-hana-hahaha/)”

    * þegar umræðan snerist um Íris Róbertsdóttur þá segir Bergþór “[Nú ætla ég að segja eitt sem er mjög dónalegt. Hún er ung, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár heldur en hún var fyrir fjórum árum síðan.](https://stundin.is/grein/7967/)” en Bergþór er formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis og [hörfaði hann undan](https://stundin.is/grein/7967/) áður en Íris, sem var gestur á fundinum, mætti. Bergþór hefur enn ekki beðið hana afsökunar.

    * Bergþór, eins og Gunnar gerði, ásakar Albertínu Friðbjörg Elíasdóttir um áreiti og að hafa gengið á þá með kynlíf en hann segir “[Hún var að tosa buxurnar af hælunum á mér […] Ég vakna úr nærbuxunum.](https://stundin.is/grein/7946/haeddust-ad-metoo-sogum-og-sogdu-albertinu-hafa-reynt-ad-naudga-ser/)”

    * Bergþór og Gunn­ar brutu [siðaregl­ur alþing­is­manna](https://www.mbl.is/media/78/11178.pdf).

    * Bergþór leiðir Miðflokkinn í Norðvesturkjördæmi í komandi kosningum.

    **Anna Kolbrún Árnadóttir**

    * sat í velferðarnefnd Alþingis og kallaði Freyju Haraldsdóttur, fyrrverandi varaþingmann Bjartar framtíðar og þekkt bar­áttu­kona fyrir auknum mann­rétt­indum fatl­aðra, [„Freyju eyju“ og „Eyju“](https://kjarninn.is/frettir/2019-08-01-ummaeli-onnu-kolbrunar-um-freyju-ekki-brot-sidareglum/)

    * sagði ekki af sér en má eiga það að hafa gefið frá sér [innilegustu afsökunarbeiðnina](https://www.ruv.is/frett/eg-a-mer-engar-malsbaetur). Þó tók hún þátt, ásamt flokksbræðrum hennar, í því að ráðast á Báru og [saka hana um hafa ákveðið dulargervi](https://www.visir.is/g/2019190209489/segja-baru-hafa-akvedid-dulargervi-sitt-adur-en-hun-maetti-a-klaustur) sitt áður en hún mætti á Klaustur.

    * er í öðru sæti, á eftir Sigmund Davíð, á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi, og mun líklega hverfa af þingi skv. skoðanakönnunum

    **Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, þáverandi þingmenn Flokk Fólksins**

    * Karl sagði um Ingu Sæland, formann flokksins sem hann var meðlimur í: “[Hún getur þetta ekki. Hún getur talað um þetta, hún getur grenjað um þetta, en hún getur ekki stjórnað](https://stundin.is/grein/7935/)”, einnig komu þeir aldrei Ingu til varnar þegar þingmenn Miðflokksins drulluðu yfir hana.

    * Karl er sagður hafa kallað Eygló Harðardóttur, fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra „[galna kerlingarklessu](https://kjarninn.is/frettir/2018-12-01-karl-gauti-segist-ekki-hafa-sagt-neitt-sidferdislega-amaelisvert/).“. Karl neitaði því staðfastlega en þó hafa þessi orð ekki verið tengd við annan einstakling.

    * önnur orð hafa ekki verið sérstaklega tengd við Karl, né Ólaf, en í [tilkynningum](https://kjarninn.is/frettir/2018-12-01-olafur-isleifsson-naervera-min-var-hjaseta-i-hnifakostum-thessa-ordljota-samkvaemis/) frá [þeim](https://kjarninn.is/frettir/2018-12-01-karl-gauti-segist-ekki-hafa-sagt-neitt-sidferdislega-amaelisvert/) báðum sáu þeir eftir því að hafa tekið þátt á þessum fundi.

    * tvemur dögum eftir fyrstu fréttum af upptökunum voru þeir reknir úr Flokk Fólksins en sátu enn sem óháðir þingmenn. Hægt er að rökræða hvort það var sanngjarnt, en þeir tveir gengu í Miðflokkinn í febrúar 2019, nær þremur mánuðum eftir sem hjálpar málstaðnum þeirra ekkert.

    * Karl er ekki á lista [Miðflokks í Suðurkjördæmi] (https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/07/21/karl_gauti_ekki_a_lista_midflokks_i_sudurkjordaemi/) fyrir næstu kosningar og sama er með hann Ólaf í [Reykjavíkurkjördæmi norður](https://www.ruv.is/frett/2021/07/19/olafur-segist-vikja-til-hlidar-til-ad-leysa-pattstodu), veriði bless.

    Endilega leiðréttið mig ef þið sjáið villur eða bætið ef ég hef gleymt einhverju, og nei, ég er ekki sponsaður af Soros (því miður) né hrægammur vogunarsjóðs. Ég bara þoli ekki þetta fólk.

  2. Hvernig í ósköpunum kom Inga Sæland út úr þessu sem einhver hetja.

    >Gunnar segir um Ragnheiði Runólfsdóttur, sem er afrekskona í sundi sem steig fram í viðtal og opnaði sig um heimilisofbeldi af hálfu sambýlismanns síns til margra ára, “Já sundkellingin þarna, voruði að lemja hana?” segir Gunnar og skellihlær. Ekki hefur komið fram að Gunnar hafi beðið hana afsökunar.

    Gunnar fékk mikla gagnrýni fyrir að grínast um heimilisofbeldi hérna. En ástæðan fyrir því að hann var að tala um það var að sambýlismaðurinn sem er umræddur var starfsmaður Flokks Fólksins.

    Sannarlega er verra að ráða ofbeldismann í leiðtogastöðu en að grínast um ofbeldið. Þó er auðvitað bæði hræðilegt.

  3. En Simmi var svo mikið krútt þegar hann borðaði hráa kjötið um daginn, hvernig getur maður annað en kosið hann?

  4. Meiriháttar samantekt, takk fyrir þessa upprifjun

    Skora á þig að taka saman þau mál sem xD þaggaði niður með ofbeldi (lögbanni) fyrir síðustu kosningar

  5. Sögustund:

    Ég gekk framhjá Klaustursbarnum tvisvar þetta kvöld með kærustunni og tengdapabba. Fyrst á leið á Austurlandahraðlestina og aftur á leiðinni heim. Tengdapabbi minn er málkunnugur Önnu Kolbrúnu og sagðist vilja kíkja inn og eiga orð við hana. Skamma hana fyrir að hanga með SDG og svona almennt að skíta yfir félagsskapinn.

    Kærastan sagði, sirka orðrétt, “Æji, leyfðu þeim bara að vera í friði. Þau eru bara að spjalla við kollega yfir bjór eftir vinnudaginn, við skulum ekkert vera að trufla þau.” Hann lét til leiðast og við fórum og fengum okkur að borða. 1-2 tímum síðar erum við aftur á leiðinni framhjá og búin að fá okkur einhverja bjóra með matnum. Nú ætlaði tengdó sko að fara inn og segja þeim til syndanna. Þau voru líka öll áberandi hressari og drukknari en áður. Við töluðum hann aftur af þessu, að það væri nú algjör óþarfi að trufla fólkið, þau fengu nú alveg nógu mikinn skít án þess að miðaldra kallar færu að trufla þau við sötrið og skamma þau.

    Svo las maður um þetta daginn eftir og næstu vikur og velti fyrir sér hvernig farið hefði ef hann hefði fengið sínu fram. Hvort hann hefði drepið stemminguna og þau sleppt alverstu gullmolunum eða hvort hann hefði bara orðið aðalstjarnan í þessu öllu saman.

    TL/DR: Gekk framhjá þingmönnum og fékk mér indverskan. Mæli með laukpakodas hjá þeim.

  6. Ég hef unnið á þvílíkum durgavinnustöðum með alls kyns pungsveittum þursum og orðljótum sjóurum, en ég hef bara aldrei heyrt neitt í líkingu við þetta. Mikið djöfull hlýtur alþingi að vera ógeðslega toxic vinnustaður.

  7. Væri til í að fá botn í uppreist æru málið mikla, er fólk en að kaupa Henson? Var maðurinn laumu ættingi B.Ben? Það var fullt af sögum en ekkert staðfest

  8. Þá sjaldan að ég fer gegn samfélagsskoðun /Iceland…

    Aldrei hafði ég talið mér trú um að alþingisfólk væru neitt sérstaklega kurteist, sérstaklega ekki í einrúmi og í glasi í þokkabót.

    Þeir pólitíkusar sem ég hef kynnst hafa upp til hópa verið metnaðarfullt fólk, aðalega innan Samfylkingarinnar. Ég ætla ekki að kasta orðum eins og siðblinda fram þar sem ég er ekki sálfræðimenntaður. En mig langar samt til þess.

    Núna kemur whataboutism.

    Ágúst Ólafur sat á þingi eftir að hafa áreitt konu. Helgi Hjörvar hefur sömuleiðis nýverið verið sakaður miður góða hluti gagnvart konum. Allt þetta var reynt að þagga niður.
    Samanborið við fólkið á Klausturbar sem var í einkasamtali og orð þeirra beindust ekki gegn neinum. Ef ekki hefði verið fyrir upptökuna þá hefði þetta engu breytt. Einhverjir gætu sagt að þetta hefði varpað ljósi á hvaða innri mann þetta fólk hafði að geyma, en ég taldi mig alveg vita það þá þegar. Þetta kom mér að minnsta kosti ekki á óvart. Munum við einhverntíman fá tækifæri til að hlusta á aðra alþingismenn tala á meðan það er leynileg upptaka í gangi? Ég vil sjálfur ekki þurfa að svara fyrir það sem ég kann að segja á fylleríi.

    Þegar ég sá þá útreið sem þetta fólk varð fyrir af hendi réttlætisriddara samfélagsins að þá fannst mér hræsnin vera æpandi.

    Ég mun ávallt kjósa Miðflokkinn hér eftir. Ég veit að það kann að virka barnalegt að beita atkvæði sínu á grundvelli bitursleika. Ég hef þó haft þó nokkurn tíma til að melta þetta og ég stend ennþá fastur á þeirri skoðun.

Leave a Reply