Tugir ó­­­skráðra vopna hafi fundist á heimili föður ríkis­lög­­reglu­­stjóra

5 comments
  1. Þessi mynd af henni gefur mér [þetta](https://www.youtube.com/watch?v=n9gRbhMugD8) vibe.

    >Agnar segir lögregluna ekki haft áhuga á að rannsaka málið og segir óskiljanlegt að Guðjón hafi ekki fengið stöðu sakbornings í málinu.

    Er einhver hissa?

    >Ríkisútvarpið greinir einnig frá því að yfirheyrsla á Guðjóni sem vitni í málinu hafi verið framkvæmd á heimili hans en ekki á lögreglustöð. Engar skýringar hafa fengist á því hvers vegna sá háttur var hafður á.

  2. Hérna er tækifæri fyrir fólk, sem hefur ekki sjálft upplifað valdníðslu af hálfu lögreglunnar á Íslandi, að taka eftir því að lögregluembættin hérna er ekki eins saklaus og margir segja við fólkið sem kvartar yfir valdníðslu hérna.

    Þegar fólk gagnrýnir verk lögreglu, og spillingu innan hennar, þá er það sama fólk ekki að byðja um löggæslulaust Ísland. Það er strámaður sem furðulegt fólk bryddar upp á við furðuleg tilefni. Það er bara spurning um að veita ríkisstofnun, með leyfi til valdbeitingar og frelsissviptingar, það raunverulega aðhald sem hlutverk hennar og ábyrgð kallar á að samfélagið veiti henni.

  3. Er þessi Guðjón ekki með margfalt meira magn af ólöglegum vopnum en þessir blessuðu hryðjuverkamenn sem hafa setið í gæsluvarðhaldi síðustu vikur?

  4. Allir búnir að steingleyma upphaflegu fyrirsögninni í þessu máli; “hryðjuverk á Íslandi”… það bara hvarf alveg, sá partur af sögunni, eins og hann hafi verið einhver “Look, over there; a TERRORIST!” taktík… ?

Leave a Reply