Langaði bara að varpa ljósi á sjónarhorn sem að Íslendingar eru ekki mikið að velta fyrir ser. Hvernig “merkasti” Íslenski myndlistamaðurinn okkar (ákveðið útfrá óþekktum skala) er í raun listþjófur.

Hér eru nokkrir linkar, það er hægt að finna fleiri tengdar þjófnaði hans.

http://www.comicscube.com/2010/05/erro-modern-day-roy-lichtenstein-or.html?m=1

https://bleedingcool.com/comics/recent-updates/brian-bolland-takes-on-erro-and-wins/

http://www.thegreatgodpanisdead.com/2014/07/comics-vs-art-part-1000000.html?m=1

Ég vill taka fram að ég hef sjálfur persónulega ekkert á móti umbreytingarlist (pop art, remix etc) , þeas myndefni við umbreytingar verður það að nýjum hlut. Það sem Erró gerir aftur mikið af er að taka verk annara og breyta þeim mjög lítið. Selur síðan á uppsprengdu verði á fínum galleríum. Þetta er einskonar Neo-colonialismi gagnvart teiknimyndasögum eins og einn höfundurinn sem var stolið frá benti á. Erró gefur það frá sér að hann er að lyfta verkunum upp á hærri stall fínna lista og út úr lágmenningu teiknimyndasagnanna.

8 comments
  1. Það er löngu búið að varpa ljósi á þennan meinta “stuld” en sú staðreynd að ekkert hefur verið gert í málunum segir allt um lagalegu stöðu hans og hans myndlistar. Þetta er mjög gild nálgun á myndlist og enginn stuldur í gangi.

  2. Það sem mér finnst verst við Erró er að hann sölsar undir sig stærstu listasöfn höfuðborgarsvæðisins (Listasafn Reykjavíkur og safneign Kjarvalsstaða). Hann er nánast alltaf með eina sýningu í gangi í stórum sal Listasafn Reykjavíkur og mig minnir að u.þ.b. 80% af geymslunum eru fyrir hans verk. Þetta fær hann því að hann “gefur” íslensku þjóðinni verkin sín á þeim forsendum að hann er ávallt til sýnis, og gerir þetta í staðinn fyrir að t.d. leyfa ungu kynslóðunum að spreyta sig. Skil ekki hvernig þetta er í lagi. Síðan finnst mér persónulega verkin hans vera drepleiðinleg endurtekning á löngu útdauðri stefnu.

Leave a Reply