Ríkissjóður gæti tekið lán fyrir borgaralaunum

5 comments
  1. Ég er nú frekar hrifinn af mörgu sem píratar vilja, einna helst áherslunum á gegnsæi, en í þessu kristallast ástæðurnar fyrir því að ég kýs þá ekki. Það hvorki er né verður nægilega mikið svigrúm í rekstri ríkisins til þess að koma einhverju formi af borgaralaunum eða almennt umsvifameira velferðakerfi í framkvæmd.

  2. Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að ég mun aldrei geta kosið þennan flokk. Það virðist ekki vera nokkur skilningur á rekstri, heldur bara útópískar hugmyndir sem aldrei myndu ganga upp í raunveruleikanum. Ef að satt reynist þá er [flokkurinn blankur](https://www.dv.is/eyjan/2021/9/7/ordid-gotunni-piratar-sigla-staurblankir-inn-kosningabarattuna-thurfa-lan-fyrir-kosningabarattunni/), sem kæmi manni svosem lítið á óvart ef að þetta er hugsunarhátturinn.

  3. Gæti líkað bara prentað peninga, og hækkað skatta á þá sem eiga nóg. Bara svona fylgja [nýrri hugmyndum í fjármála og peningastefnu](https://www.investopedia.com/modern-monetary-theory-mmt-4588060) sjálfstæðra ríkja en frá 18. öld.

    Við getum líka alveg neitað að ræða nýja, og öskrað hástöfum um Óðaverðbólgu þegar einhver minnist á að bókhald ríkisins sé ekki sambærilegt við vasabókhald einstaklinga.

Leave a Reply