Ég hef sjaldan verið jafn pirraður að lesa eina frétt og einn facebook status.
Hæstaréttarlögmaður að birta upplýsingar úr lögregluskýrslu til að styðja skoðanir sínar. Kvennfyrirlitningin alveg upp í topp alla leið í gegn og svo útúrsnúningurinn og hrokinn þegar hann er spurður út í þetta.
Og ofan á allt saman sé ég nákvæmlega ekkert í þessum gögnum sem hann bortir sem eigi að hjálpa málstað hans eða Kolbeini neitt.
Það er líka svo stútfullt af þessum köllum í mikilvægum störfum og stöðum innan réttarkerfisins. Haldiði að það sé gaman að stíga fram þegar þetta er fólkið sem þarf að díla við eftirá?
Mér finnst alveg óskiljanlegt að svona birting sé lögleg.
Er amk alveg fullkomlega siðlaust.
Það að sjálf dóttir hans hafi tekið hann á teppið í kommentunum, og minnt á að gagnrýnin sem hann hefur á Þórhildi gildi líka um hennar eigin atvik, segir svo margt.
Þegar menn láta svona hluti út úr sér eru þeir að særa, smána og svívirða svo margar konur og aðra þolendur í kring um sig án þess að átta sig á því.
Annars virðist þessi bara hafa mist af seinustu tveim áratugum eða svo í framþróun samfélagsins. Heldur að það að draga upp eitthvað tweet þar sem hún talar um að fara í sleik og eitthvað sé einhverskonar “gotcha” sem lætur hana líta verr út, þegar í raunveruleikanum lætur það hann bara hljóma eins og gamlan bældan karl sem er hræddur við kynlíf.
Ef að maður kæmi ferskur inn og les kommentakerfin þá myndi maður halda að Ísland væri enn fast í árinu 1982. Síðan þegar að er nær skoðað þá sér maður að þetta er allt fólk sem var að rokka eigið hár og tennur um það leyti.
Það er ótrúleg biturð í stórum hluta landsmanna sem eru yfir fimmtugu að þjóðfélagið sé ekki lengur að gúddera heiminn eins og hann var þegar þau voru ung.
Sigurður hefur sjálfur látið ýmislegt flakka á samfélagsmiðlum sem liti illa út ef það væri birt eitt og sér og án samhengis.
Fyrir utan að þessar lögregluskýrslur eru ekki aðgengilegar almenningi, sem hlýtur að þýða að Sigurður G. er að brjóta persónuverndarlög í það minnsta. Þekki ekki siðareglur lögmanna eða hvaða reglur gilda almennt um birtingu skýrslna sem ekki eru aðgengilegar almenningi (og miðað við myndirnar virðast vera frumrit, eða minnsta kosti ekki ljósrit eða útprentun af gögnunum).
Var það ekki Kolbeinn sem nafngreindi sjálfan sig, og Þórhildi og braut þar með samkomulagið sem var í gildi?
Kemur einhverjum á óvart að þetta glataða og óheiðarlega fólk, tel þar til stjórn og framkvæmdarstjóra, hafi falið glötuðu og óheiðarlegu fólki mikilvæg hlutverk?
Það þarf greinilega að skipta út svo til öllum í valdastöðum í þessu batterýi. Helst fyrir mun yngra fólk sem er öllu jafna í betri takti við nútímann og raunveruleikann.
Er hann edrú ?
Heldur maðurinn að það sé sniðugt að nota yfirstrikunarpenna og draga það fram að hún hafi ekki verið örkumluð eftir manninn og á sömu blaðsíðu kemur fram að hann elti hana uppi, þrengi að öndunarvegi hennar og segi henni að hún þurfi að fara með henni ?
​
Þessir lögfræðingar í kringum Kolbein eru að gera þetta vsona hundrað sinnum verra fyrir hann.
Mér er í raun skítsama um álit Sigurðar á þessu máli.
Hef meiri áhuga á afhverju hann hefur undir höndum þessar skýrslur og birtir þær opinberlega. Það hlýtur að vera á svig við einhver lög eða reglur.
Það er ennþá óheppilegra fyrir KSÍ miðað við að hann er með tengsl þarna og hefur unnið fyrir samtökin, rétt eins og lögfræðingur Kolbeins. Lítur út eins og hann hafi mögulega komið eitthvað óopinberlega að þessu máli og ráðlagt mönnum.
Það er alltaf að verða augljósara að meðhöndlun svona mála hjá KSÍ var ekki í neinum föstum “ferlum” hvað svo sem fólk þar heldur fram. Málin voru leyst í kyrrþey til að útiloka neikvæða umfjöllun sem að gæti valdið ímyndar skaða fyrir samtökin eða landsliðið.
Hvort sem það þýddi peningar, þagnarsamninga, eða að koma höggi á fórnarlömb eða hóta þeim. Virðist hafa allt verið á borðinu sem valkostir. Allt fyrir klúbbinn og styrkt af skattfé.
10 comments

https://media.giphy.com/media/tyqcJoNjNv0Fq/giphy.gif?cid=ecf05e477kslxs35ok3ga53i0qgvpz60m32127m0jhqcph1i&rid=giphy.gif&ct=g