Er þetta slakasta tilraun að “skemmtiefni” sem gerð hefur verið?

17 comments
  1. Mér fannst fyrstu 10 sek af stiklunni fyndið, nennti samt ekki að horfa á meira og ég nenni enþá minna að kvarta/gera grín af þessum þáttum

    Vel gert hjá þeim bara, en fyrir hvað eru þau þekkt? Aldrei heyrt um þær áður

  2. Held það sé þvert á móti svo að þetta sé hugmynd sem er eiginlega ekki hægt að klúðra og muni alltaf skemmta stórum hópi.

    Klárlega ekki mér og líklega ekki þér en tiltölulega stórum hluta þjóðarinnar. Svona þættir eru fáránlega vinsælir úti í heimi og ég sé ekki af hverju það yrði öðruvísi hér.

  3. Þetta hljómar ansi mikið eins og The Simple Life með Paris Hilton og Nicole Richie sem var í sjónvarpinu um 2006.

    …Var það ekki örugglega snilld?

  4. Miðað við stykluna þá leyfi ég mér að fullyrða að eina ástæðan fyrir því að þessir þættir virka er að þeir eru 100% sviðsettir. Þættir þar sem raunverulegt venjulegt fólk prófar raunverulega ein dag af einhverri vinnu yrðu allt of leiðinlegir, líklega myndi ekki nást neitt áhugavert myndefni yfir daginn, venjulegir vinnudagar eru boring.

    En með sviðsetningu er allt hægt. Stelpurnar leika sig miklu heimskari en þær eru, sem gerir það áhugaverðara að fylgjast með þeim tækla einföldustu verkefni, starfsfólkið (ef þetta er raunverulegt starfsfólk sundlaugarinnar) tekur þátt í leiknum, þetta “hey ég er að fara að stökkva í mat takið þið ekki turninn á meðan?” var til dæmis beint upp úr handriti, og svo eru sviðsett vandamál fyrir þær að díla við eins og gaurinn í rennibrautinni.

    Sidenote: síðan hvenær mega fullorðnir karlmenn ekki fara í rennibrautina? Ég er 27 ára og fer eiginlega alltaf þegar ég er í sundi. Er ég glæpamaður?

  5. Kannski ekki minn tebolli en bara góð þróun hvað mikið af ungu fólki er farið að framleiða allskonar efni og afþreyingu

  6. Er ég eini sem finnst þetta bara frekar skemmtilegt? Er reyndar náunginn sem elskar lélega þætti/kvikmyndir/lög

  7. Ekkert að því að apa eftir formatti sem var ágætlega skemmtilegt en af þessari stiklu að dæma hefði mátt taka meiri áhættu og blanda inn háleitari hugmyndum.

    Þegar París og Nicole voru dregnar skelþunnar úr penthouse íbúð á Miami Beach og sendar að moka svínaskít fann maður fyrir smá Þórðargleði af því að sjá þessar elítu prinsessur þjást eilítið. Í lok þáttar skildi maður líka að þær höfu farið út fyrir þægindarammann og þótt þær væru augljóslega aldrei að fara að gera þetta aftur þá var reynsluheimur þeirra í raun og veru víðari fyrir vikið.

    Þessar tvær í sundlauginni eru ekki sjarmalausar en á ég að trúa því að það að reka Aðstoðarframleiðanda þáttarins upp úr lauginni hafi verið hápunktur dagsins?

  8. Ættli þetta sé ekki í sama rusl flokki og raunveruleika þættirnirPatrekur Jaime: Æði sem skarta klæðskiptingunum í aðal hlutverki.

  9. 2006 var að hringja og vill hugmyndirnar sýnar til baka..

    Afhverju er verið að uphefja svona hæfileikalausa “áhrifavalda” alltaf hreint ski ég ekki.

  10. Dirty Jobs virkaði því Mike Rowe, eins mikið og hann gerði grín af vinnunum þá var það yfirleitt í gegnum hann sjálfann og hann bar yfirleitt mikla virðingu fyrir því sem hann var að fást við.

  11. Vá hvað þessar plastdúkkur eru sorglegar. Og ekki virðast gáfurnar vera að flækjast mikið fyrir þeim.

Leave a Reply