Guðni Bergsson segir af sér sem formaður KSÍ

11 comments
  1. Ef að það fara ekki fleiri frá þá er þetta frekar aumt.

    Það er búið að koma fram að það vissu ansi margir innan KSÍ um þetta mál sem að helst er rætt um þar sem að faðir stúlkunnar tók sig til og sendi póst á hér um bil alla starfsmenn KSÍ á sínum tíma.

    Ef að stjórn KSÍ og yfirmenn s.s. framkvæmdastjóri sitja sem fastast þá var bara verið að kaupa frið með því að fórna Guðna. Og ekkert mun breytast í meðhöndlun svona mála hjá KSÍ.

  2. Rosalega loðin svör frá Klöru í viðtali núna við Vísi. Segist síðan ekki hafa séð viðtalið við Guðna og verður mjög furðuleg þegar að hún er spurð út í hvort að hún hafi heyrt af einhverjum svona málum áður.

  3. Það er svo margt í þessu sem gerir mig reiðan, en það er eitt sem stuðar mig meir en annað. Hann tók það fram í kastljós viðtalinu að eftir metoo hefði sambandið skoðað ferla og farið yfir það hvernig svona mál yrðu meðhöndluð.
    Ef leiðin er að fá einhvern lögfræðing sem starfar innan sambandsins (þó ekki sem lögfræðingur) til að verja leikmanninn og boða þolendur á fund í höfuðstöðvum ksí til að bjóða þeim skítapening gegn því að skrifa undir þagnarskyldu. Vá, vel gert Ksí að fara kaþólsku leiðina.

  4. Guðni féll á prófinu og ég get skilið það að hann stígi til hliðar en ef það verður eina breytingin er það langt frá því að vera nóg. Rotið innan KSÍ byrjar hvorki né endar hjá Guðna.

  5. Þegar stjórnin segist ekki hafa heyrt af neinu af þessu og þetta komi þeim mjög á óvart er mjög skrítið. Þetta er Ísland, ég vissi af þessum málum og veit af helling af öðrum málum og hef vitað lengi og ég er ekkert tengdur inn í þennan fótboltaheim þannig séð. Ég er mjög hissa hvað þetta hefur tekið langan tíma

  6. Er Rúnar Már bara að fara í mjög óheppilega tímasett sumarfrí eða hefur hann eitthvað óhreint mjöl í pokahorninu?

  7. Að mínu mati á fólk aðeins að bíða með að vera of dómhart í garð KSÍ, allavega þangað til eitthvað kemur fram sem svarar spurningunni hvort sambandið hafi átt beina þátttöku í að þagga einhver mál niður. Ef svo reynist þá má alveg krefjast þess að sambandið láti fleiri hausa fjúka, geri hreint fyrir sínum dyrum og ljóstri upp þeim málum sem KSÍ hefur haft aðkomu að. En það er stór munur af vera beinn hlutaðeigandi máls eða að frétta af einhverju. Væri þá virkilega hægt að gera kröfu á að KSÍ framtíðarinnar setji sjálft sig í eitthvað sjálfstætt rannsóknar eða uppljóstrunarhlutverk út af hegðun leikmanna? Er það ekki full ósanngjörn krafa á sambandið að það eigi að gera sjálft sig ábyrgt fyrir hegðun fullorðinna manna sem það hefur lítið húsbóndavald yfir, menn sem spila nokkra leiki á ári fyrir sambandið?
    Við ættum að setja dómhörku okkar á þann stað sem hún á að vera, hjá leikmönnunum. Nú er sem virðist 4 leikmenn dottnir út úr hóp út af hegðun utan vallar, bæði við og líka KSÍ eigum betra skilið.

  8. Hi there,

    Sorry I don’t speak or read Icelandic, ignorant Canadian here.

    I read a similar article on the BBC – could someone let me know what the general sentiment is around the allegations? I was confused why there were resignations considering they are only allegations at this point? Þakka þér fyrir

Leave a Reply