Neikvætt og óvirðulegt

8 comments
  1. Hverjum er greiði gerður með því að vera skírður Lúsífer? Mér finnst bara allt í lagi að Lúsífer sé ekki leyfilegt nafn í íslensku.

    Mér finnst margt að í lögum um mannanöfn en er er þó algjörlega sammála 3. málsgrein 5. greinar:“Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama”.

  2. Ætti þá ekki með sömu rökum að banna fólki að heita Loki? Ef að fullorðinn maður vill bera eitthvað nafn sem hann hefur kallað sig í 20 ár er afskaplega kjánalegt að mínu mati.

  3. En hvað kemur það ríkinu við hvað við heitum, eina sem ætti að skipta máli fyrir ríkinu er kennitalan. Nafn er hvorteðer ekki nægilega auðkennandi sumir með sama nafnið.

  4. “Nafnbera til ama”? Ef þessir fasistar segðu það sem þeir meina, þá væru allir með þeim á máli. Það er einfaldlega of hár cringe factor á þessu nafni. Þetta væri öllum sem kynnast nafnbera til ama.

  5. Að segja fólki erlendis frá Íslandi er góð skemmtun. Fólki finnst helst erfiðast að trúa að mannanafnanefnd og verðtrygging séu alvöru fyrirbæri á 21. öld.

  6. Þessi manna­nafna­nefnd er með því heimskulegasta sem ég get mögulega hugsað mér um. Frænka mín og maðurinn hennar áttu þann sameiginlega draum um að skýra dóttur sýna Zelda. Þau áttu dóttir og virtist að draumurinn þeirra myndi rætast, voru byrjuð að kalla hana Zeldu en fengu svo ekki að skýra hana það. Þetta er svo fáránlegt kjaftæði að hálfa væri nóg.

  7. Ég átti hest sem hét Lúsifer.

    Hvað segið þið um starfsheitið **Viðbjóður** ? Eigandi einnar stærstu timburverslunar landsins, hér áður fyrr. kallaði sig viðbjóð. (Það var reyndar í gríni.)

Leave a Reply