Mögu­legt að grípa þurfi til skerðinga á heitu vatni

4 comments
  1. >Hin ástæða þessa vandamál er að sögn Almars sá langi tími sem það taki að rannsaka ný vinnslusvæði. Öflun nauðsynlegra gagna getur tekið allt að áratug.

    Er þetta ekki vandamál sem fólk hefði átt að spá í með góðum fyrirvara, hvernig er þetta bara að koma í ljós núna?

    ​

    >Almar segir góðu fréttirnar þær að nokkrar leiðir séu fyrir hendi til að minnka þau áhrif sem þetta vandamál hafi á samfélagið okkar. Þær séu fyrst og fremst að nýta vatnið betur, og minnka þannig líkurnar á að grípa þurfi til skerðingar.

    Uff, sé það ekki beint fyrir mér að þetta mun takast, allir svo vanir að vera með endalaust vatn og þurfa ekki að spá í því.

  2. Ah, hvað það er gaman að búa í samfélagi sem er heltekið af veldisvaxandi neyslu á tímum þar sem raunveruleikinn er byrjaður að banka upp á á hverjum degi til að minna á að sama hvað stendur í excel, þá er ekki óendanlegur fjöldi atóma í heiminum og að grotnandi innviðir geti ekki… grotnað endalaust.

    Ætli þetta verði ekki eins og covid. Fullt af fólki mun færa fórnir af því það er ekki lýðræðislega vængstíft og skilur að gjörðir einstaklingsins hafa afleiðingar fyrir alla. Sumt fólk mun hætta að nenna að spara eftir viku, mánuð eða ár. Margir eru búnir að ákveða að vatn sé óendanlegt á Íslandi og engin beiðni frá ríkinu breytir því. Sumir skrúfa frá öllum krönum til að owna libbana.

    En þetta er allt í lagi. Á meðan við búum okkur undir heitavatnsskort rífst Alþingi um hvort að fjárglæpamaður sé fjárglæpamaður, svo það er allavega verið að díla við mikilvægu málefnin. En ég meina… betra en þriðja heimsstyrjöldin, svo ætli það sé ekki best bara að þegja á meðan maður hefur þann lúxus að geta sagt það ennþá.

Leave a Reply