Heidelberg ætlar sér að reynast góður granni

4 comments
  1. Áhugaverð lesning: [https://en.wikipedia.org/wiki/HeidelbergCement](https://en.wikipedia.org/wiki/HeidelbergCement)

    Hér kemur fram hvers konar “granni” HeidelbergCement hefur reynst í öðrum samfélögum, til dæmis í Indónesíu og á vesturbakka Jórdanar.

    Þetta virðast vera frekar miklir kakkalakkar, miklu fremur heldur en “góður granni”. Það er sýnt að það verður stanslaus þungaumferð í þessa verksmiðju með tilheyrand mengun og raski.

    Ég hélt í alvörunni að við Íslandingar værum hætt að falla fyrir svona erlendum auðlinda rányrkju gullröfurum? Hvað finnst fólki? Er hægt að planta svona skrímslaverksmiðjum nánast beint niður í miðbæ á íslenskum bæjum?

  2. Rosalega er þetta íslenskt. Það er verið að öskra á aukna uppbyggingu íbúðahúsnæðis, að tvöfalda einbreiðar brýr, fleiri og stærri leikskóla/grunnskóla… en viljum við taka þátt í að búa til sementið sem þarf í allt þetta? Ekki séns. Íbúar annarra landa geta bara gert það fyrir okkur þó að það sé mun óumhverfisvænna fyrir heiminn en ef við tækjum þátt°. Ef við bara lokum augunum fyrir iðnaðinum sem þarf fyrir okkar neyslu og uppbyggingu þá er hann ekki til. Um að gera að láta aðrar, og sérstaklega fátækari, þjóðir taka alla mengun og umhverfisáhrif á sig svo við getum montað okkur yfir því hvað við séum umhverfisvæn, jafnvel þó að neysla okkar sé ein sú óumhverfisvænasta í heimi.°°

    Fólk hefði kannski líka átt að hugsa út í svona hluti áður en það fjárfesti í húsnæði við einu höfnina á suðurströndinni.

    ° https://www.visir.is/g/20222336130d

    °° https://kjarninn.is/skyring/professor-a-svidi-loftslagsmala-segir-islendinga-stunda-sjalfsblekkingu/

  3. >Þorsteinn Víglundsson, talsmaður HeidelbergCement Pozzolanic Materials ehf. á Íslandi

    Djöfull fer þessi náungi í taugarnar a mér. Tækifærissinni og nákvæmlega paddan sem ég bjóst við að vera á bakvið þetta

    Ótrúlegt að framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins hafi náð að blekkja sig inn á Alþingi sem einhver “maður fólksins”, og stingur svo af á miðju tímabili

Leave a Reply