Lögreglan skaut byssumann á Egilsstöðum

12 comments
  1. Alveg ömurlegar fréttir en líka mjög lítið af upplýsingum ennþá.

    Áhugavert samt að það virðist ekki hafa liðið langur tími frá því að hringt var í lögguna og þangað til hún var mætt. Er sérsveitin með fólk á norðausturlandi?

  2. Mér finnst skammarlegt af rúv að setja inn myndband þar sem maður heyrir skotkvell og svo í manninum klárlega í gríðarlegum sársauka… Kannski DV en ekki rúv.

  3. frá frétt mbl:
    Lög­regl­unni á Aust­ur­landi barst til­kynn­ing um vopnaða mann­inn í Dal­seli á Eg­ils­stöðum þegar hann hafði haft uppi hót­an­ir um að beita skot­vopni. Þá fór lög­regla á vett­vang og var maður­inn þá inni í íbúðar­húsi, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu frá lög­reglu.

    Til­kynn­ing­in til lög­reglu um at­vikið barst laust eft­ir klukk­an tíu í kvöld.

    Skot­hvell­ir heyrðust inn­an úr hús­inu og skaut maður­inn í átt að lög­reglu. Þá var ekki vitað hvort fleiri væru inni í hús­inu.

    „Eft­ir um klukku­stund kom viðkom­andi vopnaður út úr hús­inu, skaut að lög­reglu og varð þá fyr­ir skoti,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

    Í kjöl­farið fékk maður­inn aðhlynn­ingu frá lækni og var síðar síðar flutt­ur með sjúkra­flugi til Reykja­vík­ur. Ekki er vitað með ástand hans.

    „Vegna rann­sókn­ar­hags­muna get­ur lög­regla á þessu stigi ekki tjáð sig frek­ar um málið. Það fer nú til rann­sókn­ar hjá embætti Héraðssak­sókn­ara.“

  4. Hvenær var aftur fyrra tilvikið? Fyrsta skipti sögunnar þegar íslenska löggan skaut mann?

  5. Hrikalegt að sjá myndirnar þaðan í dag, hann var búinn að skjóta á helling af rúðum og víst búinn að fara inn í eitt hús og skjóta þar allt í spað.

    Myndi segja að þetta hafi verið réttlætanleg viðbrögð hjá lögreglunni.

Leave a Reply