Heilt og sælt góða fólkið!

Það gæti verið smá long shot að spyrja hér en það sakar ekki að freista gæfunnar. Þannig er mál með vexti að ég sendi inn umsókn um ríkisborgararétt og öll fylgigögn til Útlendingastofnunar í maí, en ég sótti um með sérstakri beiðni til Alþingis því ég er helvítis útlendingur frá ekki-ESB-sviði og á því enga aðra kosta völ til að gerast Íslendingur í alvöru. Í morgun barst mér eftirfarandi bréf frá ÚTL, sem ég bara afrita og líma hér:

***
Góðan dag,

Útlendingastofnun hefur framsent umsókn þína ásamt fylgigögnum til Alþingis. Með vísan til 2. mgr. 6. gr. laga nr. 100/1952 um íslenskan ríkisborgararétt mun Útlendingastofnun afla umsagnar lögreglu og gefa sjálf umsögn um hverja umsókn. Umsagnir verða unnar í þeirri röð sem umsóknirnar bárust Útlendingastofnun en umsagnir vegna umsókna sem beint er til Alþingis sæta ekki sérstökum forgangi umfram afgreiðslu umsókna um íslenskan ríkisborgararétt sem berast stofnuninni á grundvelli 7. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt. Umsagnir fyrir hverja og eina umsókn verða áframsendar Alþingi þá þegar þær liggja fyrir.

Þegar þetta er ritað er Útlendingastofnun að vinna umsóknir sem bárust stofnuninni í febrúar 2022. Hægt er að fylgjast með afgreiðslutíma umsókna á heimasíðu stofnunarinnar. https://island.is/s/utlendingastofnun/stada-mala-og-afgreidslutimi

***
Það sem er mér óskýrt er hvort umsóknin mín hafi nú þegar farið í gegnum umsagnarferlið hjá ÚTL og bíði nú afgreiðslu hjá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, eða hvort hún þarf frekari úrvinnslu hjá ÚTL. Það er sem sagt ruglandi því skv. heimasíðu ÚTL og þessu bréfi er blessaða stofnunin nú að vinna úr umsóknum frá febrúar. Ég skilaði í maí, þannig að ég skil ekki alveg hvers vegna hún er nú þegar komin til Alþingis.

Með fyrirfram þökk,

Ráðvilltur gerviíslendingur

2 comments
  1. Af hverju segirðu að þú eigir engra aðra kosta völ en að sækja um til Alþingis? Þú getur farið venjulegu leiðina í gegnum Útlendingastofnun, en þarft þá væntanlega að hafa búið á Íslandi í 7 ár áður en þú getur sótt um, sem er almenna reglan.

Leave a Reply