Reykjavík ætlar að taka á móti 1500 flóttamönnum

10 comments
  1. Semsagt fjölgun um 8.780 erlendir ríkisborgarar, fjölgun um 1.500 flóttamenn og svo auðvitað Íslendingar um 1.443 manns það gerir fjölgun um 11.723 manns þá sem fjölgar um og fasteignir í byggingu 7.260 íbúðir í byggingu. Það vantar þá um 4.463 byggingar í viðbót við það. Svo það þarf allavega þá að byggja ennþá meira, sömuleiðis þá sennilega auka leikskóla og skólapláss, allskonar þjónustu. Persónulega, það er frábært að vilja hjálpa fólki en spurning er hvernig ætlum við að fara að því að hjálpa þeim þegar við sennilega höfum ekki einu sinni möguleikan á því að veita þeim þessa þjónustu.

  2. Það vantar vinnuafl á mörgum þjónustusviðum, og eftir nokkur ár verður meðalaldurinn á Íslandi gífurlega hár, einhver þarf að hugsa um allt gamla fólkið

    Okkur vantar þetta fólk, húsnæðisvandann er hægt að ráðast á með því að takmarka leigusölum að éta upp markaðinn

  3. Hvað með húsnæði fyrir fólkið? Það er þegar húsnæðisskortur.
    Á kannski að reisa gámaþyrpingu til að hýsa það?
    Hótel eru yfirfull og dýr kostur.

    Jæja, þetta reddast.

  4. Þetta mun leiða til öfgafullrar skoðanna margra með tímanum. Það er óhjákvæmilegt. Það verður forvitnilegt að sjá hversu stórt þetta viðfangsefni verður í næstu kosningum. Mig grunar að það verði stærra og stærra, mjög hratt.

  5. Þetta er frábært fyrir Ísland. Setja fólk í vinnu pronto. Ekki erum við bara með fleira fólk til að vinna, við fáum líka fleiri neytendur sem víkkar hagkerfið.

  6. Fjölmiðlar eru lítið að ræða öll þau tíðu slagsmál, hnífstungur og annað sem lögreglan er kölluð til inn á þessum flóttamanna/hælisleitenda “hótelum” sem nú eru.

Leave a Reply