Eru hjólreiðamenn til í að fjármagna svona lagað að hluta til með hjólreiðagjöldum, líkt og bílstjórar gera með skattlagningu? Heiðarleg spurning, enda væri þetta rándýrt.
Mér líst vel á svona hjólreiðamannvirki – en bara ef hjólreiðamenn ætlast ekki til að allir aðrir en þeir sjálfir borgi fyrir þetta. Þeir eiga að borga sem nota.
Nei takk.
Nota allan svona pening frekar í að byggja, byggja, og byggja svo aðeins meira. Við getum hjólað í rigningunni á meðan við höfum þak yfir höfuðið.
Ég var einu sinni í umhverfis og byggingarverkfræði og fór í “vísindaferð” til Reykjavíkurborgar. Þar voru þau td að tala um átak sitt í hjólreiðastígum.
Á þessum tíma reyndi ég að hjóla sem mest í skólann. Ég spurði hvort það væri á stefnuskránni þeirra að planta runnum eða trjám annað hvort beggja megin eða öðru megin við hjólreiðastíga til að fá skjól. En ég var skotinn niður og hann sagði nei það er bara vitleysa.
Ég hugsa að svona mannvirki væri sniðugt við stíga sem eru berskjaldaðir við veðri og vindum.
Mig langar hinsvegar að sjá ríkið/Vegagerðina nýta gömlu Hringvegar-vegstæðin útá landi til nýtingar á hjólreiðastígum. Það eru margar gamlar brýr sem væri gaman að gera upp og nota sem hjólreiðabrýr. Til dæmis gamla Þjórsárbrúin.
Yfirbyggða göngu- og hjólastíga, takk!
Algjörlega! Það væri gaman að sjá góða skoðun á þessu. Það hefur verið gaman að sjá uppbyggingu af stígum á höfuðborgarsvæðinu, en veðrið spilar ansi stórt hlutverk í notkun þeirra. Mér finnst þetta mjög áhugaverður kostur fyrir Ísland þar sem lægðir koma í röðum 6-7 mánuði ársins og drepur alla hvata til að ganga eða hjóla í vinnu.
Það er bara þvæla að hjólreiðafólk eigi að standa undir kostnaði á þessu ein og sér. Því fleiri sem myndu fara úr bílunum og taka rafhlaupahjól í vinnuna allt árið um kring væri sparnaður fyrir samgöngur og bílastæðanotkun og það þarf að taka inn í heildarmyndina.
Ég er ekki viss um að svona einingar þurfi að vera svo dýrar. Það væri skynsamlegt að skoða að framleiða þær innanlands þar sem flutningskostnaður væri eflaust risapartur af kostnaðinum ef aðflutt.
Áhugavert væri að sjá tillögu af því hvernig þetta kæmi út með hliðsjón af Borgarlínu, svona stígar frá Borgarlínu stöðvum og út í hverfin myndi gera þann möguleika mun vænlegri fyrir marga íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
Svo lengi sem það heldur ykkur af götunum
Ég geri ráð fyrir að þetta myndi vera fyrir gangandi og hjól og ég verð að viðurkenna að ég er ekki viss um hvað mér finnst um þetta. Sem kona þá líður mér aldrei jafn illa labbandi eins og í göngum, þak væri fínt samt.
7 comments

Á samgönguáætlun næstu fimmtán ára er gert ráð fyrir 640 ma. króna framlagi til samgöngumála eða ca. 46 ma. árlega. Á hverju ári er ríkið svo að innheimta [um 70 til 80 ma.](https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/skattar-af-bifreidum-og-umferd-almennt-nam-80-milljordum-a-sidasta-ari) frá bifreiðaeigendum í formi skatta og gjalda.