
Sauð upp úr þegar tveir 18 ára drengir rökræddu við Ernu um fitubrandara Gillz
Þetta er víst bakvið patreon vegg, er einhver sem getur deilt þessu hérna? Langar ekki að styrkja podcastið.

Sauð upp úr þegar tveir 18 ára drengir rökræddu við Ernu um fitubrandara Gillz
Þetta er víst bakvið patreon vegg, er einhver sem getur deilt þessu hérna? Langar ekki að styrkja podcastið.
14 comments
Jæja kæru íslendingar, velkomnir í þennan komandi 100 plús athugasemda þráð.
Bið ykkur góða skemmtun að þræta við ókunningja á netinu.
Ég skal byrja. Það er ósangjarnt að heilbrigt fólk niðurgreiði heilbrigðiskostnað fyrir feitt fólk.
Úffffff þetta er svo mikið Clout chasing hjá Eddu og fleirum í þessu máli. Sérstaklega þar sem þetta er á bakvið patreon-vegg.
Þetta er ekki allt svona svarthvít. Fólk að taka einhverju persónulega sem fer fram milli tveggja vina. Ef fólk á twitter kæmist yfir samtöl míns og besta vinar míns þá myndi það líklegast fá flog yfir því hvernig við tölum við hvorn annan hahaha.
Einnig, fáránlegt að fá tvo 18 ára menntaskóla stráka í viðtal vs háskóla menntaðan guðfræðing (Erna?) og háskóla menntaðan stjórnunarfræðing (Edda). Að auki að Erna skuli hafa látið þessa stráka ná svona til sín (triggera sig) þannig að hún strunsaði út…
Einstaklega narsískur þefur af þessu öllu hjá aktívistum á netinu sem leita eftir næsta rifrildi því þau eru með eitthvað persónulegt Vendetta og líka sérstaklega hjá Eddu að setja þetta inn á netið fyrir Clout. Allt gert fyrir læks og athygli!
Er orðinn einstaklega þreyttur á öllu þessu liði!
/horfir á titil þráðsins…
/horfir á greininguna á erfðasjúkdómi sem beinlínis veldur fitumyndun og hindrar líkamann í því að brenna fitu nema að mjög littlu leyti og kemur með ókeypis bónus krónískum sársauka með möguleika á fyrsta vinningi… varanlegri hreyfiskerðingu sem endar í hjólastól…
Já, þetta verður örugglega þráður með vandaðri hófkenndri umræðu sem mun ekki alhæfa, engin mun fara í persónulegar árásir eða hvetja til þess að þeir í minni stöðu fái verri heilbrigðisþjónustu en nú þegar (sem væri fyndið þar sem jafnvel með greiningu er þetta ömurlegt og hefur nú þegar valdið óafturkræfum skemmdum) af því ´flestir eru ekki eins og þú´ og einhvern vegin eru allir fokking sérfræðilæknar þegar kemur að greina ókunnuga út frá útliti á götu á 5 sekúndum. Umm hmm, já, þetta getur ekki farið illa frekar en ferðamaðurinn sem byrjaði samtal við mig og vin á því hvort Ísland væri ekki svona öruggt af því það væri svo lítið af svörtu fólki… Góður dagur til að vera ekki á netinu… kannski ég fari út að ganga… haltra… á skemmda beininu og núll brjóski. Good times.
(ES: Er dálítið fokking sama um allt þetta lið. Ef Sveppi er ok þá er mér sama, Gillz er ekki vinur minn svo skiptir mig ekki máli. Bara bömmer að því miður þá dregur svona alltaf fram fólk sem er ekki með neina fordóma **EEEEEEEENNNNNNNNN…** og það endar alltaf á sama hátt og er aldrei til nokkurs gagns)
Allt versta fólkið á báðum hliðum að draga hvort annað niður í svaðið.
“Af hverju borga ég sjúkrahús reikninga fyrir fólk sem lendir í bílslysi eftir að hafa keyrt of hratt/notaði ekki bílbelti/lungnakrabbamein eftir reykingar/brot eftir fallhlífarstökk”…. Eru þetta ekki afleiðingar lífsstíls?
Fyrst fannst mér þetta hálfgert væl, en eftir að lesa yfir kommentin hér er nokkuð augljóst að það er slatti af fóki sem bókstaflega hatar feitt fólk. Kannski er þörf á þessari umfjöllun.
Bara benda á að holdafar íslendinga er sem svo að um það bil helmingur þjóðarinnar er yfir kjörþyngd og 37.1% telst vera í ofþyngd og þar af 14% í offitu.
Hvernig er hægt að tala um að feitt fólk sé minnihlutahópur eða jaðarhópur?
Ef ég er feitur og hata sjálfan mig (ekki endilega tengt) er ég þa með fitufordóma?
Hugmynd fyrir [næsta þátt](https://www.frettabladid.is/frettir/vilja-raeda-um-rasisma/) af mögulegum [bad takes](https://www.instagram.com/p/CRFJyKyJI2x/) (47 min) hvít forréttindi og rasismi á Íslandi, þetta er guaranteed hundruð fleiri patreons subbers og auðvelt að hypa up á twitter.
Þetta er svo mikið non issue. Auðvitað á ekki að ráðast á feitt fólk fyrir að vera feitt en hvað er að því að gera brandara milli vina
Djöfull finnst mér frábært að það sé loksins hringrunk af lágværa meirihlutanum sem er farin að láta heyra í sér vegna svona steypu, feitt fólk er óheilbrigt, það eina sem það þarf að gera í því í lang stærstum meirihluta tilfella er að hætta að troða ofan í sig mat, það má gera grín af feitu vinum sínum sem hlæja með og þetta lið sem móðgast alltaf og lætur eins og jaðarskoðun sín sé heilagur sannleikur er löngu orðið þreytt.
Kv – fyrrum offitusjúklingur.
Mæli eindregið með [þessari grein](https://thecritic.co.uk/issues/december-2019/big-fat-lies/). Lesturinn tekur smá tíma en er hverrar mínútu virði.
Mikið fólk hérna athugar ekki að þeir sem éta ekki hollt hafa oft búið við sálfræðiskaða sem gerir heilbrigt líf mikið erfiðara. Það fæðist enginn með löngun til að vera óheilbrigður. Ég hataði feitt fólk sem yngri maður. Nú geri ég mér grein fyrir að það var heimskulegt.
Er i lagi að fólk sé feitt? Jájá er svosem sama. En það sem böggar mig svo ógeðslega mikið er þegar ég sé 35 ára 200kg konu með barnið sitt, sem er alltof þungt. Það ætti að vera ólöglegt að gefa barninu sinu svona mikinn mat. T.d ef þú átt hross, sem er virkilega offitað þá væri það lögbrot. Til hvers ekki með börninn okkar. Virkilega ósanngjarnt fyrir börnin. Þegar krakki er í 3 bekk og er yfir 60kg það er ekki i lagi.