Er hægt að kasta öllu þessu liði í steininn áður en þeir drepa einhvern
Lögreglan getur ekki komið í veg fyrir glæpi – hún er ekki fyrirbyggjandi stofnun. Það sem fyrirbyggir að svona aðstæður myndist til að byrja með eru hlutir eins og menntakerfi, aðgengi að tómstundum fyrir öll börn, velferðarkerfi sem kemur í veg fyrir svakalega mis- og séttar-skiptingu milli barna. Það er svakalega mikið af “mjúkum” “félagslegum” hlutum sem þarf til að fyrirbyggja svona vargöld.
Þetta eru afleiðingar þess að skera niður fyrirbyggjandi stofnanir, og þær verða ekkert betri ef við valdeflum lögregluna af því lögreglan er ekki fyrirbyggjandi stofnun. Við værum í raun að gefast upp við vandamálinu, og ætla okkur að mæta ofbeldi með ofbeldi, ef við hlustum á hugmyndirnar sem koma frá verstu hlið hægri stjórnmála.
Einhver okkar þekkja eflaust til einhverra sem eru nú bundin í þessa djöflasýru. Hugsanlega muna þau eftir þeim sömu aðilum sem börn. Börn sem síðan á endanum lærðu að þessi hegðun væri eftirsóknarverðari en ekki. Börn sem hefðu vel getað farið aðra leið, en hafa því miður ákveðið að það sé enginn góður staður fyrir þau innan samfélagsins okkar.
Niðurskurður á samfélaginu kostar, og sá kostnaður kemur ekki strax í ljós – en þessi þróun gerðist ekki af sjálfu sér.
Burtséð frá allri umræðu um hvað eigi að gera í þessu, þá er alveg gersamlega sturluð og vitfirrt hegðun að henda bensínsprengju í fjölbýlishús vegna þess að þú átt í einhverjum deilum við einn íbúa þar.
Það búa tugir fólks, jafnvel yfir hundrað ef þetta er stór blokk, í þessu húsi sem koma málinu ekkert við. Fjölskyldur. Börn. Og þú ert tilbúinn að setja þau öll í lífshættu útaf einhverju kjaftæði?
Jafnvel þó ég setji mig í þau spor að vera kominn á þann stað andlega að vilja raunverulega vinna einhverjum mein, jafnvel myrða hann, þá get ég ekki ímyndað mér að vera svo ógeðslega sjálfhverfur og vitfirrtur að vera tilbúinn til þess að ógna lífi og heimilum stórs hóps af fólki sem kemur málinu ekkert við!
Það er mikil mildi að enginn hafi slasast, en getur þú ímyndað þér hvað það er skelfilegt að vakna við miðja nótt við að einhver hafi hent bensínsprengju á húsið sem þú býrð í?
Einhver í þessu húsi á frænda, eða bróðir, eða vin, sem þekkir til þessarra gæja, og er ekki glaður í dag.
Í litlu samfélagi, þá rétti svona hegðun sig af af sjálfsdáðum… eða hún gerði það allavega hérna áður fyrr. Þá hefðu tveir stórir og kannski þjóðþekktir menn bankað á hurðina hjá bensínmanninum og bent honum á, vinsamlegast, að svona lagað væri ekki í lagi; svona mál á að leysa “in private”.
Kannski er Ísland orðið svo stórt og fjölmennt núna, eða samfélagið orðið svo sundrað, að slíkt virkar ekki lengur, og við þurfum lögreglu sem getur gert eitthvað í málinu?
…vandamálið er bara, það þarf að hreinsa til í lögreglunni áður en við gefum þeim aukin völd.
Djöfuls smábörn eru þetta…
Nei annars, smábörn haga sér ekki svona, veit ekki hvað á að kalla þetta, annað en tilgangslausa siðblinda aumingja.
Það er ekki til nein afsökun fyrir því að haga sér svona.
Veit einhver hvaða skemmtistaðir eru með þessa dyravarðaklíku starfandi hjá sér eða hvar þetta lið hangir niðrí bæ? Semsé hvar er fólk að setja sig í mesta hættu á að brenna inni því einhverjir fávitar eru hendandi molotov kokteilnum hægri vinstri?
6 comments