Eitthvað á þetta eftir að hressa uppá kjaraviðræðurnar.
Frábært
NEEEI beint í námslánið
Einn daginn munum við kannski líta til baka, og skrifa aðra Rannsóknarskýrslu Alþingis um tíman frá 2008 til einhverrar óræðrar dagsetningar sem ég vona að verði helst á morgun en líklegast ekki fyrr en eftir annað hrun sem almenningur þar að taka á sig.
Þangað til verð ég að sætta mig við að minnast á að þessi seðlabankastjóri er hræðilegur, ekki nærrum því eins sjálfstæður og fólk vill halda, og mun alltaf velja að vellta ábyrgðinni yfir á almenning frekar en að reyna að vera sjálfstæður og takast á við ríkið sjálft.
Enda er viðkomandi innmúraður í stjórnmálastéttina hérna, með mjög loðinn feril að baki sér, og enganveginn besti kosturinn til að stýra þessum blessaða seðlabanka okkar.
En hann hlýðir rétta fólkinu, og er ekki með leiðindi.
Gott mál.
Best að taka meðalið núna meðan að það er hagvöxtur og lítið atvinnuleysi frekar en að lenda á milli steins og sleggju á sama tíma og verðbólgan er svona klístruð.
Í staðin fyrir að leyfa genginu að falla þá gerir hann þetta sem á eftir að lama nýbyggingar sem á aftur eftir að valda verðbólgu síðar. Fyrir utan hvað atvinnulífið á eftir að halda að sér höndum sem á eftir að koma af stað kreppu.
Mikið vildi ég að maðurinn léti gengið falla verðbólguskotið koma eins og gerðist í hruninnu. Þá hætta utanlandsferðir sjálfkrafa og ferðamenn koma með gjaldeyri.
Elska hvað Seðlabankastjóri hamrar á því að Seðlabankinn eigi ekki aðild að kjaraviðræðum en hagar ákvörðunum sínum þannig að hann hafi bein áhrif á þær og byggir að hluta ákvarðanir á þeim.
Held að Seðlabankinn hafi verið að vinna sér inn óvild allra núna.
Kemur í ljós seinna hvort að það var ástæða til þess eða ekki. Sjáum hvernig þetta hefur áhrif á verðbólguþróun.
Eitt er þó víst, húsnæðismarkaðurinn er farinn í frost núna. Það er dýrt að fá lán núna.
Og sem viðbót þá finnst mér ennþá betra að hann segi að neysla sé að aukast.
Held að þau séu ekki að fatta það að allir birgjar matvöru hafa hækkað verð sín mánaðarlega núna síðustu 11 mánuðina. Auðvitað er fólk að eyða hærri upphæðum.
Mér fannst skondið kommentið hjá einhverjum sem sagði að fólk með mikið fjármagn væru að græða á þessu.
6% innlánavextir. Í 10% verðbólgu. Svo mikill hagnaður.
9 comments

[it’s the end of the world ](https://youtu.be/Z0GFRcFm-aY)