Hvar eru múturnar?

5 comments
  1. Það er náttúrulega mjög mikilvægt fyrir nýtt framboð að vita hvar múturnar eru! :p

    En að öllu gamni slepptu, þar sem þetta er varla gamanmál: Þegar ég var yngri þá fannst mér alltaf svo furðulegt að “Lobbýismi” var normið í Bandaríkjunum því þetta var klárlega bara lögleidd leið til að múta stjórnmálafólki og því stórfurðulegt að hafa bara uppi á borði.

    Svo eldist maður aðeins og tekur eftir því að það eru nákvæmnlega sama sér-hagsmunagæslan hérna á Íslandi, en hún er ekki kölluð lobbýismi heldur bara ekki kölluð neitt.

    Ég hef líka leyft mér að halda að mútur séu eitthvað sem gerist ekki á Íslandi. Samfélagið er svo lítið að það væri hreinlega erfitt að halda þeim leyndum… held ég. En miðað við allt upptalið í þessari grein, og þeirri skoðun minni að fólk í stjórnmálum spilar sig vitlausara en það er, þá hreinlega hlítur eitthvað að ýta undir svona mikið tap af fjármunum frá ríkissjóð í einkavasa.

    Ég reyndar held ennþá að það séu ekki mútur í beinhörðum peningum, af því það væri svo auðvellt að nappa fólk við það. En frændsemin, greiðvikni, aðgengi að tækifærum og möguleikum sem annars myndu ekki bjóðast – ég er viss um að það er í gangi hérna alveg eins og annarsstaðar. Þar eru múturnar að öllum líkindum.

  2. Ég held að hreinræktaðar mútur, þar sem einhver fær gommu af peningum til að gera eitthvað, séu sjaldgæfar hér, ef ekki alveg óþekktar. Það er of auðvelt að sanna það fyrir rétti.

    En.. það sem ég held að sé mun algengara er að fólki sé lofaðar óbeinar ívilnanir. T.d með því að lofa fólki kósí stöðum í stjórnum og annað eftir að þingmennsku líkur, eða með því að gefa fólki tengdu stjórnmálamönnum ívilnanir. Viðskiptaveldi náskyldra ættingja Bjarna Ben er t.d gott dæmi.

    Ef maður er góður í spillingu skilur maður ekki eftir sig slóð af brúnum umslögum fullum af peningum. Það gera bara bjánar. Ef maður er góður í spillingu er ekki hægt að koma upp um neitt, því allt var löglegt og eðlilegt á yfirborðinu og jafnvel þó dýpra sé kafað.

    Svo er ekki verra ef maður getur hagað spillingunni þannig að stór hópur fólks hagnist á henni, eins og t.d með útsölunni á Íslandsbanka; Ég get alveg lofað þér því að allir sem höfðu einhver tengsl í fjármalageirann eða stjórnarþingflokkana vissu það vel að þau ættu að kaupa eins mikið og þau gætu. Það var ekki haldið partí í Ásmundarsal til að halda upp á málið út af því að allir voru svo rosa ánægður með þetta út frá hugmyndarfræðilegum prinsippsjónarmiðum.

  3. Gunnar Smári er ekki allra en hann er beittur penni og mikið vit í mörgu af því sem hann er að skrifa þessa dagana. Kemur ekki á óvart að Sósíalistaflokkurinn sé í sókn í könnunum.

  4. Kristur hvað þetta er leiðinlegt teik. Allir sem eru ósammála honum eru jú annað hvort vondir eða vitlausir.

    Er Gunnar Smári að álykta að það hljóta að vera mútur sem ráði því að ríkið leigi húsnæði undir starfsemi fremur en að kaupa?

    Það þjónar ekki samfélaginu áður standa í svona samsæriskenningum. Raunar þjónar það engum nema Gunnari Smára.

  5. Ekki beint mútur en ég man eftir því þegar ónefndur ritstjóri, við skulum kalla hann Gunnar, sagði við unga blaðakonu á blaðinu sínu að hún myndi fá að skrifa um áhugverðari hluti í blaðinu einungis ef hún svæfi hjá honum.

Leave a Reply