Fyrst Hrekkjavaka, svo Valentínusardagurinn og nú Þakkargjörð. Hvaða amerísku hátíð ætlum við að taka upp næst? Fjórða júlí? Veteran’s day? Memorial day?

20 comments
  1. Svartur fössari og áður en við vitum þá er löggan mætt með byssur og byrjuð að skjóta fólk hægri vinstri bamm bamm! Er líka byrjaður að sjá ljóta Ameríska pickup bíla á götunum, jukk!

  2. Þú getur andmælt endalaust en þetta mun gerast. Mótmæltu frekar með að panta
    Þér þjóðarrétt íslendinga (dominos) í stað kalkúns.

  3. Hrekkjavöku er maður búinn að taka í sátt vegna
    Þess að það er hægt að rekja það til U2 og Bono.
    Hitt er alfarið amerískt og á ekki heima hér. Hagkaup finnst mér markaðsvæða flest af þessu rugli.

  4. Ísland er og hefur í einhvern tíma verið ekkert annað en mini-Bandaríkin. Í hvert skipti sem ég líka tala við túrista um Ísland, þá segi ég þeim bara að þetta séu bara mini-Bandaríkin.

  5. Hrekkjavakan og Valentínusardagurinn eru báðar kristnar hátíðir frá Evrópu. Valentínusardagurinn meira frá meginlandinu og Hrekkjavakan þróaðist á Bretlandseyjum (með rætur á meginlandinu).

    Það sem við erum að herma eftir Bandaríkjunum er *hvernig* er haldið uppá þessa daga. En það hefur verið haldið upp á þá lengur á Íslandi en í Bandaríkjunum.

  6. Mér finnst bara gaman að bæta einhverju við á milli verslunarmannahelgi og jóla.

    Valentínus neita ég hinsvegar að taka upp.

  7. Ég er reyndar alveg búinn að taka hrekkjavökuna í sátt. Krakkarnir elska þetta og íbúar í hverfinu mínu (sem og nærliggjandi hverfum) hafa verið að leggja mikið á sig til að gera þetta sem flottast.

    Hvað þakkargjörðarhátíðina varðar, þá er þetta [fyrir mér] bara afsökun til að borða góða vini og hitta mat. Myndi ekki segja að ég haldi eitthvað upp á þetta umfram það.

  8. Má maður ekki skreita árið betur með fleiri hátíðum? Lífið getur verið rosa einhæft í þessu skammdegi. Ef þið viljið svo ekkert taka þátt þá er það líka alveg í lagi.

  9. Hættu að vera svona mikill pirripú, ekki halda upp á það ef þú vilt það ekki. Ég hinsvegar fagna hverju tækifæri til að gleðjast, það gerir lífið skemmtilegra.

  10. Ætli þetta sé ekki vegna þess að það er ekkert að gerast á þessum haust mánuðum og unga fólkið notar tækifærið til að skella í teiti.

    Við erum með slatta af hátíðum og tillidögum restina af árinu.

    Eftir verslunarmannahelgi, hýruhátíð og menningarnótt er lítið sem ekkert að gerast fram að jólum. Ekki furða þó að októberfest og hrekkjavaka mæti lítilli mótstöðu.

    Viðbót: Það væri reyndar fyndið að taka upp þakkagjörðarhátíðina en hafa hana sem hógværðarhátíð og minnast þjóðarmorða um heim allan, t.a.m. indíána Norður Ameríku.

  11. Hrekkjavakan er nú reyndar hátíð byggð á hátíð sem þekktist lengi vel hérna á Íslandi. Uppskeruhátíðir þekkjast um víða veröld og það er því ekki við að sakast að tilgangur svona hátíða breytist og menningarinnblástur hafi áhrif á birtingarmyndir þeirra.

    Ég er hinsvegar alfarið á móti þessum kapítalíska fögnuði ,,black friday” og sambærilegra viðburða í þeirri mynd sem þeir eru í dag. ,,Black Friday vikan”, ,,Singles Day helgin”, Cyber Monday vikan” o.s.frv. Þar að auki eru þetta ekki góðir afslættir. Ég myndi fagna svörtum föstudegi ef þetta væri eitt rýmingarkvöld með 90% afslætti til að taka á móti jólavörunum.

    Hátíðir eins og 4. júlí, þakkargjörðarhátíð, ,,memorial day”, ,,Veteran’s day” o.fl. eru hreinlega furðulegar hér því þær byggja á gríðarlega staðtengdum menningarfyrirbærum og það liggur við að um menningarnám og ódýra gróðahyggju sé að ræða. Að við tölum nú ekki um að þakkargjörðarhátíðin er gríðarlega umdeild til að byrja með.

Leave a Reply