Það er ákveðinn hópur Íslendinga, sérstaklega af landsbyggðinni sem hefur gríðarlegar áhyggjur af umhverfisáhrifum laxeldis og að ákvarðanir um leyfi og uppbyggingu þessarar atvinnustarfsemi hafi verið teknar af fjárhagslegum einkahagsmuna ástæðum sem muni hafa varanleg neikvæð áhrif á íslenska laxastofna og íslenskar laxár. Eitt helsta áhyggjuefnið er laxalúsin sem fer mjög illa með fiskana. Undir náttúrulegum aðstæðum herjar hún lítið sem ekkert á náttúrulega laxastofna út af því hvernig þeir ferðast en fiskunum sem haldið er í sjókvíum eiga á hættu að verða fyrir [ófrýnilega miklu magni af lús](https://theferret.scot/wp-content/uploads/2018/09/Damaged-salmon-in-Loch-Roag-2-thanks-to-Corin-Smith.jpg) sem étur af fiskunum roðið og jafnvel inn að beini, erlendis er notað gríðarlegt magn af eiturefnum og sýklalyfjum til þess að koma í veg fyrir lúsina og aðrar sýkingar.
Annað áhyggjuefni er síðan fiskarnir sem sleppa og áhrifin sem þeir hafa á náttúrulegu stofnana, eldisfiskarnir eru af öðrum stofni og þróast mikið með tímanum. Fólk hefur áhyggjur af því að fiskarnir sem sleppa úr kvíunum beri með sér lúsina og hafi varanlega erfðafræðileg áhrif á stofnana ef þeir blandast.
Persónulega veit ég lítið sem ekkert um málið, mér skilst að það hafi ekki enn sem komið er orðið neitt umhverfistjón af laxeldi hérna á Íslandi og þess vegna snýst áróðurinn hérna að mestu leyti um tilfinningalegt efni eins og þessar auglýsingar “sjáðu hvað fiskurinn hefur það slæmt”. En miðað við þau áhrif sem fiskeldið hefur haft erlendis þá er kanski mjög eðlilegt að fólk, sérstaklega þeir sem eiga hagsmuna að gæta í laxám, vilji grípa í taumana áður en eithvað óafturkræft tjón á sér stað. Eina sem ég hef horft á tengt þessu erlendis samt er [þessi heimildamynd](https://www.youtube.com/watch?v=RYYf8cLUV5E)
Varðandi auglýsingarnar þá prufaði ég nú bara að googla “NASF Iceland” og fann [þessa heimasíðu](https://nasf.is/en/about_nasf/#) sem virðist vera samtökt sem berjast gegn laxeldi almennt hérna í norður evrópu.
Æi eldislax hefur það ömurlegt, það er leiðinlegt að borða mat sem hefur það ömurlegt. Eldislax fær líka mestmegnis fóður sem er framleitt úr öðrum fiskum sem þýðir að við séum að veiða fisk til þess að fóðra fisk sem við erum að rækta… rosa sóun.
[deleted]
NASF er North atlantic Salmon fund sem er alþjóðleg samtök sem vinna að verndun Atlantshafs laxins. Orri Vigfússon sem lést á síðasta ári var einn af stofnendum þeirra samtaka en hann hefur verið með mjög fjársterka einstaklinga sem hafa unnið að þessu verndunarverkefni í gegnum tíðina.
Seinni ár hefur NASF verið að gera meira og meira upp á PR gegn sjókvíareldi og ég sem laxveiðimaður tel það frábært.
Kaupum frekar fisk úr landeldi og verndum þessa firði okkar.
Það sem mér finnst merkilegast í þessu öllu er að þetta eru upp til hópa Norsk fyrirtæki sem standa að sjókvíeldi á Íslandi. Eins og það sé ekki nóg af fjörðum í Noregi. Málið er að Norðmenn hafa verið að leggjast meir og meir gegn sjókvíeðli af öllum þeim ástæðum sem hér eru taldar upp (laxalús, blöndun við villtan stofn, og svo framvegis), þannig þessi fyrirtæki leita hingað.
Persónulega finnst mér við eigum að staldra við og skoða þessi mál vel áður en við leyfum þetta. Fljótt á að líta virðist hið augljósa svar vera að banna sjókvíeldi og leyfa bara landkvíeldi. Þá kemst ekki lús í laxinn og hann getur ekki blandast við villtan stofn. Nóg er landflæmið hjá okkur.
Áróður gegn laxeldi bara, skil ekki alveg afhverju.
Skil afhverju fólk er reitt útaf þessum mynd enda hræðileg að sjá þetta, sár fiskur á að veiða upp og aflífa með mannúðlegum hætti. Bæði eykur hann hættu fyrir annan fisk í kvínni og þetta er bara dýraníð. En þetta er sem betur fer ekki eitthvað sem gerist oft. Vona samt að þessi kona hafi sótthreinsað allt dótið þegar hún var að, annars gæti hún mögulega verið að bera með sér sjúkdóma úr einni kví í aðra.
En laxeldi á Íslandi er almennt mjög vel gert frá því sem ég hef séð, notað myndavélar og passað vel uppá, góður fiskur og mikið haft upp úr að tryggja að það sé ekki hætta á erfðablöndun við villta fiskinn hér við land (mun meir gert en t.d. í noregi).
Persónulega finnst mér þessi sjóeldi hafa blásið lífi í þorp út á landi þar sem samsetningin var orðin aðalega eldri borgarar og sumarhúsabyggð – þar sem kvótinn er löngu horfinn úr slíkum slottum. Er að sjá mun meira af ungu fjölskyldufólki sækja í þessa staði og heldur komið vandamál með að skaffa öllum húsnæði.
Ef horft er á matvælaiðnaðinn yfir það heila er engin draumastaða í meðferð annara dýra – hvort sem við tölum um kýr, kindur, kjúklinga eða svín. Held það sé óhjákvæmilegt að öllu dýrahaldi fylgi ýmis vandkvæði og í dæmum sem þessu þurfi bara að bæta reglur, þekkingu og reglubundnara eftirlit.
Það má líka bæta að við að mér skillst að þar sem kvíarnar séu oft svo þéttsettar af fiski fær hann ekkert mikla hreyfingu þó hann sé í sjó, og þessi þéttleiki af fiski skili af sér svo mikklum skít sem fellur svo á sjávarbotninn að hann hreynlega sé að kæfa dýralífið þar niðri.
Eldislax er víst líka nú þegar búinn að blandast við vilta stofa. Man ekki hvar ég sá það en held það hafi verið nýjlega grein sem kom út um að DNA úr eldislaxi fannst í villtum stofni. Vandinn er líka held ég að tal um eldislax sem sleppi, gleymist að taka það inn í dæmið að hann ferðast um, hann heldur ekki áfram að synda í sömu ánni, svo þeir geta verið að blandast í marga stofna.
Hver á hefur sinn stofn af laxi og alveg skiljanlegt að fólk vilji halda í þessa hópa sem hafa fengið að þróast átruflaðir hungað til.
9 comments

http://northatlanticsalmonfund.org/