Yfir 70 prósent landsmanna hlynnt bæði leiguþaki og leigubremsu

9 comments
  1. Þeir sem ráða þurfa líka að vera hlynntir. Þeir hugsa bara um sig og sína vini og því mun ekkert gerast.

  2. Framboðsskortur veldur verðhækkunum. Verðhækkanir ýta undir aukið framboð. Ef þú vilt lagfæra verðhækkanir handvirkt (t.d. með leiguþaki), sem getur e.t.v. verið raunhæft skammtímaúrræði, þá verða að fylgja með því einhver beinhörð úrræði til að auka framboð, annars er verið að læsa inni framboðsvandann til framtíðar.

  3. Það er líka ,,dýrt” að leigja út. Það sem vantar er meira húsnæði og það á ekki endilega að bitna á þeim sem vilja leigja út.

    Fólksfjölgun er gífurleg í Reykjavík.

  4. Fólk sem styður leiguþak eru oft velviljandi vinstrimenn en skilja einfaldlega ekki hvernig markaðurinn aðlagar sig á super toxic máta við slíkum aðgerðum… og allan skaðan sem slík stefnumál hafa haft í öðrum löndum.

    Saga leiguþaksins er troðfull af sorg og sút.

    Það að 70% landsmanna styðji þetta veldur mér verulegum áhyggjum, … það seinasta sem við þurfum í dag er misheppnaðar aðgerðir vinstrimanna þegar þeir eru þeir einu sem geta leitt okkur úr þessu fokki sem leigumarkaðurinn er í

  5. Ég skrifaði undir leigusamning Sumarið 2019 fyrir 195.000kr á mánuði. Leigan var vísitölutengd. Ég sagði upp sumarið 2022 og seinasta greiðslan var um 223.000. Íbúðin var auglýst á 230.000kr. Alltílæ blokkaríbúð með eitt svefnherbergi komin upp um 35þús á þrem árum. Ekki voru launin að hækka svona hratt.

  6. Stuðningsmenn leiguþaks eru á svipuðu róli og þeir sem afneita hnattrænni hlýnun af mannavöldum. Þeir taka afstöðu sem er búin að afsanna trekk í trekk, og valda stórskaða hvar sem þeir fara með völd.

    Leiguþak er ógeðfelld stefna sem gerir húsnæðismarkaðinn að hreinu happdrætti. Einungis þeir sem eru á réttum stað á réttum tíma vinna, og þeir sem tapa stólaleiknum enda uppi með hærri leigu þar sem stefnan bælir niður það eina sem ræðst á rót vandans (nýbyggingar).

  7. 1249 manns geta held ég ekki talað fyrir þjóðina. Það þyrfti að setja þessa könnun nokkrum sinnum oftar út á mismunandi fólk til að geta áætlað eitthvað.

  8. Ég hef verið í burtu frá Íslandi í 9 ár og er dálitið ryðgaður. Hvað er leiguþak og leigubremsa?

Leave a Reply