Það þarf hækkandi skatt á þetta fyrir hverja eign yfir eina, stoppa þessa vitleisu, og koma íbúðum aftur í hendur fólks sem þarf þak yfir höfuðið, fjárfestar eiga ekki að græða á nauðsynjum án nokkura takmarka.
Afsakið en hvað er “eignafólk” eiginlega?
og hvað þýðir þetta?
> Bæði er það þannig og að það sem þó er verið að byggja, stærsti hluti íbúða endar í höndunum á lögaðilum og eignarfólki sem er að koma þessu út á leigumarkaðinn.
“stærsti hluti”? Hvað eru margir hlutir? Notaðu bara prósentutölu. Ef það er meira en 50% og þú vilt koma því á framfæri þá segir maður “meirihluti”. “Stærsti hluti” getur verið túlkað hvernig sem hentar.
> Þannig að þessi þróun hefur gríðarlega slæm áhrif á leigumarkaðinn, bæði skorturinn og það að það séu ekki takmörk á því hverjir geta eignast þær íbúðir sem koma á markað
Hvernig hefur meira framboð á húsnæði til leigu slæm áhrif á leigumarkaðinn? Skortur? Þú varst að enda við að segja að það sé verið að setja “stærsta hlutinn” á leigumarkaðinn.
Fatta ekkert sem þessi gaur er að reyna að segja, ekki viss hvort hann viti það sjálfur.
Þetta kemur mér nú ekki á óvart, hef nokkuð reglulega þegar ég hef unnið í jólafríum tekið að útbúa svona íbúðir. Mjög oft í eigu sömu aðila, sem ég hef unnið fyrir. Ég hugsa oft hvað ég sé búin að útbúa mörg hús, margar íbúðir og já margar stúdíóíbúðir líka en sjálf á ekki séns á að eiga efni á þessu, ekki á mínum líftíma sem að vísu er styttri en hjá flestum. Þekki semsagt til margra sem eiga mjög margar svona íbúðir eiga nú ábyggilega eitthvað af peningum.
Ég er í litlu herbergi, það er ekkert pláss í því bókstaflega. Er ennþá í barnarúmi sem ég passa í sem betur fer því ég er lágvaxin, en það væri ekki pláss fyrir stærra rúm hvorteðer. 🦊 Það er varla pláss fyrir skrifborð og ég nota rúmið mitt sem bara staðinn sem ég læri, horfi á myndir, mér finnst ég einhvernveginn þurfa meira pláss. Því ég á það til að safna allskonar dóti nefnilega, helmingurinn af herberginu eru bangsar og hafa tekið frá mér stólinn minn hehe sömuleiðis rúmið mitt. En get engan vegin verið án þeirra. En það er nú samt eitthvað svo cozy, mikið skreytt, allt út í böngsum og auðvitað er refur líka hehe.
Mér finnst stærri frétt vera að stærsti hluti byggingarframkvæmda fer í hendur byggingarverktaka.
Og einnig sýna nýjustu rannsóknir að ríkið kaupir mestan mat af veitingaþjónustum.
Þessu verðum við að breyta strax!
Ekkert að því. Nýtt er alltaf dýrara en gamalt og verðið á þeim hvort eð er oft ekki fyrir fólk sem er að reyna að komast út á markað.
Það flytur, selur gamla sem er svo með lægra fermetraverði og allir sáttir.
*stærsti hluti íbúða endar í höndunum á lögaðilum og eignarfólki sem er að koma þessu út á leigumarkaðinn*
Æjj auðvitað…
Mér finnst svo fáránlegt að fólk sé að greiða leiguverð langt umfram afborganir íbúðarinnar sem það leigir en bankinn segir nei við það því það stenst ekki greiðslumat. Nú eða þetta fólk á ekki “start gjaldið” til að geta komið sér inn á þennan markað.
Verðin á húsnæði hafa verið í veldisvexti síðustu árin, annað hefur ekki fylgt. Þannig að aðili sem er að reyna að safna fyrir fyrstu útborgun nær ekki að halda í við hækkun húsnæðisverðs, þá sérstaklega er viðkomandi á lítið sem ekkert bakland til að kalla til. Hækkun húsnæðisverðs leiðir svo til hækkunar á leiguverði, o.s.frv.
Það er ekkert eðlilegt við það að 3ja herbergja undir 100fm íbúð (og vel langt frá miðbænum) sé leigð út á 350 þús kr á mánuði. Fólk leigir þetta svo af leigutaka því að það neyðist til þess, ekki af því að það langar svo svakalega til að borga þessa upphæð fyrir leiguhúsnæði.
Það eru spurningar sem við sem þjóðfélag þurfum að spyrja okkur. Viljum við að allir sem búa í þjóðfélaginu geti keypt sér húsnæði eða viljum við að húsnæðiseign sé í höndum fárra? Því við virðumst vera hægt að stefna í það seinna, þó við séum kannski ekki komin langt þá leiðina.
1 kt eða fjölskyldunúmer = ein íbúð.
Bara sérstök félög hafa leyfi til að eiga margar íbúðir, t.d. búseti, stúdentagarðar og slíkt.
Stofnum flokk og gerum byltingu
Á meðan Dagur og hans fólk stjórna stærsta sveitarfélaginu verður þetta svona. Þessi meinta þétting byggðar er dýr í framkvæmd og tafsöm. Hún leiðir af sér lítið framboð af íbúðum og eingöngu af dýrum íbúðum. Það skemmir fyrir að velflest fréttafólk er í sama liði og eða ekki hæft til að fjalla um þessi mál á gagnrýnin hátt.
> stærsti hluti íbúða endar í höndunum á lögaðilum og eignarfólki sem er að koma þessu út á leigumarkaðinn
Fullyrðir formaður samtaka leigjanda, en setur ekki fram gögn sem styðja þá fullyrðingu. Sem er svosem ekki nýtt úr þessari átti.
9 comments
.. af hverju er ég ekki hissa?