*”Já, jólin og aðventan eru auðvitað svona órjúfanlegur hluti af íslenskri menningu og íslenskri sögu. Ég á nú börn á grunnskólaaldri sem eru í óða önn að undirbúa jólin, á skólatíma, og það er auðvitað leiðinlegt að sjá að þessar heimsóknir séu á undanhaldi ef það er rétt. Ég á bara góðar minningar af þessum stundum frá því að ég var í skóla og ég held það séu ekki börnin sem eru að kvarta yfir því að fá frí í skólanum og fara í piparkökur og jólalög í kirkjunum.”*
Nú eru sjallarnir farnir að nýta sér mállísku bandaríska íhaldsflokka til að sanka að sér hagsmunatrausti og atkvæðum foreldra og einstaklinga sem eiga hlýjar minningar um kirkjuheimsóknir frá yngri árum eins og það sé vegið að íslenskri menningu. Þjóðernishyggja og kristin gildi eiga undir högg að sækja frá fjölmenningarhyggjunni sem blöskrar yfir kirkjusóknum án athugasemda.
Er ekki bara hægt að gefa þeim frí í skólanum til að baka piparkökur og syngja jólalög með einhverju öðru móti en að fara í kirkju til þess? Það er enginn að reyna að ræna einn eða neinn gleði þó þetta sé framsett þannig í orðalagi hennar.
Ég man alveg eftir þessum heimsóknum sjálf en man aldrei eftir að hafa fengið sérstakt frí eins og hún talar um þar sem þetta var gert á skólatíma með kennurum eða starfsfólki skólans þegar farið var í kirkjuna.
Henni er velkomið að hoppa upp í rassgatið á sér, það er enginn að banna henni að fara með eigin börn í kirkju, hún getur bara gert það ef henni er svona vænt um þetta. En sorrý með mig, ég er nú þegar að borga undir trúarbrögð sem ég trúi ekki á og ég ætlast einfaldlega til þess að þessu bulli sé ekki troðið upp á krakkana mína á skólatíma.
Foreldrum sem finnst börnin sín þurfa á kirkjunni að halda – getað farið með þau í kirkju á eigin tíma.
Þessar kirkjuheimsóknir fyrir skólakrakka mega fara beina leið til helvítis.
Leyfið krökkum að velja hvað þeir trúa sjálfir án þess að troða þessu á þau, þá sérstaklega ef þetta er frá skólum og stjörnvöldum.
Mér þætti gaman að spyrja þessa konu út í neysluhyggjuna og áhrif hennar á menninguna. Jólin eru að svo ofboðslega miklu leyti bara neysla og aftur neysla. Það er fyrir löngu búið að spilla þessari “mikilvægu menningu” sem um ræðir.
Besta minningin mín af kirkjuheimsóknum í grunnskóla eru á leiðinni til baka í skólann.
Bara af því að þú nennir ekki í kirkju með börnin þín þýðir ekki að skólinn þurfi að gera það fyrir þig. Drullastu út með þetta
Ah, það boðar fátt jafn vel komu jólanna og íhaldsmenn sem væla yfir að fá ekki að troða trúarbrögðum ofan í kokið á börnum.
Hvaða áratugalanga hefð? Hélt þetta væri frekar nýlegt.
Einkavæðum kirkjuheimsóknir. Fjármögnum með nefskatt.
Ég er sammála henni (ekki oft sammála sjöllum). Kristin trú er hornsteinn siðmenningar frjálsra lýðræðisríkja, alveg óháð því hvort fólk trúi eða trúi ekki.
Sjálfsagt að skólar láti foreldra vita þannig að þeir geti ákveðið hvort kirkja verði sótt heim eða ekki…
Hið árlega íhaldsrunk gagnvart því að láta börnin fara í kirkju.
Sniðugt hjá henni að vera á undan Simma eða Birgi (enda ekki kominn desember)og fá athyglina í ár.
13 comments

Var einhver að banna henni að heimsækja kirkjur?