Ekkert að því að berja liggjandi mann ítrekað með kylfu – en of langt gengið að loka kylfunni með því að ýta henni í bakið á honum. Samræmist ekki verklagsreglum.

12 comments
  1. Er ég að lesa þetta rétt, piparúðaði ein löggan aðra? Mikið stemmir það við hvað lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er upp til hópa fábjánar

  2. Er þetta ameríska þjálfunin sem þeir eru að fá að sýna sig?

    Og allt útaf fíkniefnum. Ó nei…

  3. Vald Lögreglu er aðlagandi fyrir fólk með persónuleikaraskanir eða fólk sem nýtur þess að vera yfir aðrar hafinn þetta hefur verið sannað, lögreglan og enbæti hennar er bigt á ofbeldi og hræðslu, hræðslu við það að vera barinn til óbóta ef þú hliðar ekki skipunum hræðslu við að vera lokaður inni í lengri tíma og sviptur frelsinu. Lögreglan virkar ekki eins og hún gerði fyrir aldamótin og þörf er á að draga úr valdi lögregluþjóna og byggja embættið upp frá grunni, í þessum lokaða hóp grasserar rasismi, klíkuskapur og verndarvæng fyrir ofbeldismenn sem vinna innan lögreglunnar. Ísland er litla ameríka

  4. Að slá meðvitundarlausan einstakling með bareflum eru pyntingar samkvæmt Genfar sáttmála.

    Gott að vita að Ísland stendur utan Genfar sáttmála. Held ég noti jarðsprengjur til að passa upp á sumarbústaðinn.

  5. Hann er heppinn að hafa haldið lífi. Minni á að lögreglan myrðir fólk með geðraskanir næstum árlega núna.

    Þetta er gengið sem fékk óheftan rétt til þess að njósna og níðast á fólki allt í boði XD og VG á einu kjörtímabili.

    Minni einnig á að það er ekkert sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu.

  6. Hafði lengið tekið upp hanskann fyrir lögreglumönnum því þetta er slíkt starf að ekki nokkur maður getur talist hæfur. Þeir upplifa það versta í fólki daglega og því ekki furðulegt að sýn þeirra á fólki breytist skjótt.

    Fyrir um það bil ári síðan var að ég stöðvaður að ástæðulausu, ég spurði ítrekað um ástæðu þess en það var hunsað. Ég var látinn fara inn í bíl til þeirra og þeir leituðu á mér. Eftir að ég var búinn að blása og ekkert kom fram þá fóru þeir að segja að það væri skrýtin lykt af mér og ég væri rauður í augunum. Þetta var rétt eftir miðnætti og ég var þreyttur. Lyktin var líklega af glussanum í eimstautnum mínum.

    Eftir töluverðan tíma af ásökunum og spurningum, sem ég svaraði á milli þess að benda þeim á að þetta væri ekki eðlilegt á neinn hátt, þá fannst þeim brýnt að taka mig niður á stöð. Konan mín var látin labba heim (sem betur fer mjög stutt). Á stöðinni var ég látinn míga í glas. Það kom ekkert fram þar. Eftir að sitja þarna í kannski 1-2 mínútur í þögn þá spurði ég hvort þessu ævintýri væri ekki bara lokið og þeir gætu kannski byrjað að skammast sín. Þá sögðu þeir að ég gæti verið löngu farinn, enda verið frjáls ferða minna allan tímann (?!?!). Þeir voru ekki til í að skutla mér til baka. Ég labbaði heim um miðja nótt í um það bil klukkutíma.

    Viku síðar var konan mín stöðvuð og leitað í bílnum og á henni. “Bara handahófskennt tjekk!” um kl 1600 í mikilli traffík. Hmm. Vitaskuld kom fundu þeir ekki neitt. Við losuðum okkur við bílinn, það var einfaldlega kvíðavaldandi að stíga upp í hann. Hvorki ég né hún höfum nokkra brotasögu.

    Þessar gaurar voru virkilega óþægilegir og ógnvekjandi. Þeir virkuðu ungir, milli tvítugt og þrítugt. Mín kenning var fyrst að þeir voru að safna í yfirvinnu. Vaktin að klárast, best að níðast á einhverjum þegni og draga það á langinn. En þráðurinn þykknaði þegar konan mín var stöðvuð viku síðar.

    Ég tek ekki hanskann upp fyrir þessu andskotans hyski lengur. Ég lifi einfaldlega í ótta við þessa búninga.

  7. Það réðst maður á mig árið 2008, ég var 20 ára og hann var augljóslega eldri. Ég var samt sterkari, enda í yfirvigt og hærri en sá maður. Við byrjum að slást og ég dett. Eftir að ég næ að verja andlitsspark, þá stend ég upp og í reiði minni ætla að vaða í viðkomandi þá er ég sleginn í hægra lærið að aftan. Ég í fylli minni og reiði held að það séu vinir hans og ætla að láta vaða, en ég sé lögreglubúning og hætti strax við.

    Lögreglan talar við manninn og vinur minn sem var með mér segir þeim hvað gerist, þeir segja einfaldega “Ekki gera svona meira” við aðilan, en mér skildist það að útaf því að ég væri stærri en maðurinn þá hefði ég augljóslega verið sá sem byrjaði. Fine, ég og vinur minn löbbum af stað í taxi röðina fyrir framan MR, en við stoppum fyrir utan Lækjarbrekku þar sem skákborðin voru einu sinni(?).

    Við erum að ræða það að ég sé að drepast í hendinni og í lærinu(eftir að hafa verið sleginn af lögreglumanni með kylfu) og svo heyri ég frá vininum “Passaðu þig!”, svo fæ ég spark í andlitið. Ég rúlla niður tröppurnar og vinur minn æðir í sama aðila og hafði ráðist á mig. Sá aðili setur á sprett og hleypur í burtu, enda sami aumingi og réðist á tvítugan strák. Mér er hlúað af pari sem er þarna nálægt og sendur uppá spítala, þar sem er komist að því að ég er með brotna hendi(eftir sparkið), með skurð á vinstra auga(eftir sucker sparkið) og með marblett á hægra læri sem var 12cm langur og 4 cm breiður, eftir kylfuna.(Pabbi ætti að vera með myndir ef áhugi er fyrir því.)

    Ég og faðir minn förum beint á lögreglustöðina á mánudagsmorgun til að kæra, ég gef skýrslu til lögreglumannsins og minnist á það að lögreglumaður hafi notað of mikið vald á móti mér, hann tjáir mér það að lögreglumaðurinn hafi öskrað lögregla og ég hafi átt að hætta. Það stenst samt ekki, þar sem að hvorki ég né vinur minn, né vinur árásarmannsins hafi heyrt það. Ég segi að ég vilji samt kvarta undan því og hann segir beint út:”Nei, ég set það ekki í skýrsluna.

    Ekki nóg með það, það er hringt í mig þegar á réttarhaldinu stendur og ég er beðinn um að koma sem vitni. Ég vissi ekki að ég þyrfti að koma sem vitni, en ég geri það og útskýri aðstæður. Það fyndna er.. að lögfræðingurinn minn var ekki þarna. Hann hafði ekki mætt. Hann sendi samt rukkun á föður minn og hann hótaði að kæra hann, hann sendi ekki rukkun eftir það.

    Þetta er mín ánægjulega reynsla af lögreglunni í Reykjavík, sem að talar niður til manns, eyðileggur traust á sinni stofnun og þarf betri þjálfun og menntun.

  8. Þetta er fokkin ógeðslegt, afhverju í fjandanum er þessi maður ekki rekin? Hann ætti auk þess að fá dóm fyrir líkamsárás, viðbjóður.

Leave a Reply