Jón Baldvin fékk tveggja mánaða dóm fyrir kynferðislega áreitni – Vísir

7 comments
  1. >Landsréttur komst hins vegar að annarri niðurstöðu og dæmdi Jón Baldvin í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Fram kemur í niðurstöðu Landsréttar að framburður Carmenar hafi verið trúverðugur og fengið stoð í vitnisburði móður hennar. Það hafi vegið þyngra en neitun Jóns Baldvins.

    Er ég að skilja rétt að maðurinn var sakfelldur á grundvelli ásakanna einna og sér? Var hann virkilega sakfelldur á orði gegn orði?

    Því ef svo er, þá er ég hræddur um að við búum ekki í réttarríki.

  2. Af hverju eru íslenskir dómstólar að dæma um eitthvað sem gerðist á Spáni? Af hverju er þessu ekki vísað til lögreglu þar í landi?

  3. Annars vegar að þeim hafi ekki verið sjálfrátt vegna ölvunar

    Eða

    Komið í heimsókn til að setja atvikið á svið og saka hann um kynferðisofbeldi.

    Ég meina ef þú ætlar að afneita og koma með afsökun ekki lata þær stangast á við hvor aðra.

    Skilorðbundið 2 mánuðir og alla ævi á sakaskrá?

  4. Er það ekki dálítið vafasamt að dæma manninn fyrir eitthvað sem gerðist erlendis? Er samt ekkert að draga það í efa að maðurinn sé perri.

  5. Íslenska kerfið er svo ruglað, margir mánuðir í vinnslu, fleiri fleiri milljónir í lögfræðinga og dómara og annað fólk svo að kallin fái 2 mánuði af skilorðsbundni fangelsi

    Þetta fólk sem kærði hefði sparað sér mikinn pening á því að ráða handrukkara í þetta verk. fucking drasl kerfi.

Leave a Reply