Útboðið á Íslandsbanka eitt það farsælasta í sögunni – Vísir

3 comments
  1. Þessi maður má eiginlega ekki komast í opinbert starf aftur. Svo veruleikafirrtur er hann greyið.

  2. Einn mesti skandallinn við þetta allt saman, sem mér finnst ekki hafa verið rætt nógu mikið, er útilokun lífeyrissjóða frá þessu útboði.

    Lífeyrissjóðirnir þurfa samkvæmt lögum að fjárfesta allavega 50% af öllum lífeyri innanlands. Það er mjög takmarkað hvar þeir geta fest peninga sem hefur m.a. orðið til þess að þeir fjárfesta í einkahlutafélögum (i.e. private equity) eins og United Silicon, sem síðan hafa farið í þrot með tilheyrandi kostnaði fyrir ellilífeyrisþega.

    Lífeyrissjóðirnir eru í vandræðum með að finna drasl til að fjárfesta í innanlands og þeir voru mjög opnir fyrir því að kaupa í þessu útboði Íslandsbanka. Þeir buðust meira að segja til þess að borga fullt markaðsverð fyrir hvern hlut í bankanum, ólíkt hinum kaupendum sem var boðið að kaupa bréfin á fyrirfram ákveðnu verði. Sem var talsvert undir markaðsvirði.

    Lífeyrissjóðir eru almennt “bestu” fjárfestar sem þú, sem fyrirtæki eða útbjoðandi á hlutabréfum, getur fengið. Þeir eru ekkert að spekúlera með bréfin heldur halda yfirleitt bara endalaust í þau í gegnum súrt og sætt.

    En af einhverjum óafsakanlegum ástæðum þá var þeim meinaður aðgangur að þessu útboði. Kannski því þeir voru ekki “atvinnu fjárfestar”, sem þeir eru þó samt tæknilega séð.

Leave a Reply